Launaráðgjafi í Mannauðslausnum

Advania

Category
IT operations
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Work mode
Hybrid
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Mannauðslausnir Advania leita að öflugum og þjónustumiðuðum einstaklingi til að bætast í okkar öfluga ráðgjafa teymi.

Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu á sviði launamála, á auðvelt með samskipti og hefur metnað fyrir því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Við viljum fá til okkar manneskju sem tekur frumkvæði, er óhrædd við að hafa samband við viðskiptavini og hefur ánægju af því að finna lausnir á fjölbreyttum verkefnum.

Mannauðslausnir Advania þróa og þjónusta lausnir sem auðvelda vinnuveitendum umsýslu launa- og mannauðsmála, meðal annars H3 launa- og mannauðskerfið og tímaskráningarkerfin Bakvörð og Vinnustund.

Við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu og byggja upp góð og traust tengsl við viðskiptavini okkar.

Teymið

Í ráðgjafateymi Mannauðslausna starfar öflugur hópur sérfræðinga með fjölbreytta reynslu af launa- og mannauðsmálum. Við vinnum náið saman, deilum þekkingu og leggjum áherslu á góð samskipti, bæði innan teymisins og við viðskiptavini okkar.

Hjá okkur færðu tækifæri til að nýta þína reynslu, þróast í starfi og takast á við fjölbreytt og spennandi verkefni.

Helstu verkefni

  • Veita viðskiptavinum faglega ráðgjöf og þjónustu vegna launa- og mannauðskerfa.

  • Vera í beinum samskiptum við viðskiptavini, greina þarfir þeirra og áskoranir og leggja til viðeigandi lausnir og umbætur.

  • Taka þátt í innleiðingu launa- og mannauðskerfa og umbótaverkefnum.

  • Deila þekkingu og reynslu innan teymisins og taka virkan þátt í að þróa þjónustu og vinnulag.

Við leitum að manneskju sem

  • Hefur reynslu af launavinnslu.

  • Hefur ríka þjónustulund og tekur frumkvæði að samskiptum við viðskiptavini.

  • Hefur góða samskiptahæfni og nýtur þess að vinna með fólki.

  • Ert lausnamiðuð/lausnamiðaður og hefur gaman af því að takast á við nýjar áskoranir.

  • Býrð yfir góðri greiningar- og skipulagshæfni.

  • Sýnir nákvæmni og ábyrgð í vinnubrögðum.

  • Hefur góða almenna tölvukunnáttu og færni í Excel.

Kostir ef þú

  • Hefur áhuga á gervigreind, sjálfvirkni og hvernig ný tækni getur einfaldað vinnuferla.

  • Hefur reynslu á H3 launa- og mannauðskerfinu.

  • Hefur reynslu af Power BI eða annarri gagnagreiningu og skýrslugerð.

Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur þá hvetjum við þig samt sem áður til þess að sækja um, þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að í þetta eða annað starf.

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 13. nóvember 2026

  2. Yfirferð umsókna

  3. Boðað í fyrstu viðtöl

  4. Boðað í seinni viðtöl

  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á

  6. Öflun umsagna / meðmæla

  7. Ákvörðun um ráðningu

  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörg Hekla Ingólfsdóttir, deildarstjóri, thorbjorg.hekla.ingolfsdottir@advania.is / 4409000.

Apply