Ráðgjafi viðskiptakerfa
Advania
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Work mode
- Hybrid
- Location
- Reykjavík
Hefur þú áhuga á viðskiptakerfum, ferlum og því að hjálpa fyrirtækjum að nýta tæknina betur?
Við leitum að ráðgjafa til að styrkja öflugt teymi okkar sem vinnur með Dynamics 365 Finance & Operations. Í starfinu færðu tækifæri til að vinna með fjölbreyttum hópi viðskiptavina að innleiðingu og þróun lausna, greiningu ferla og ráðgjöf sem styður við daglegan rekstur og áframhaldandi þróun þeirra.
Starfssvið
Viðkomandi mun taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að innleiðingu, ráðgjöf og rekstri á Dynamics 365 Finance & Operations.
Helstu verkefni
-
Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini
-
Greining, hönnun og innleiðing ferla
-
Þátttaka í uppsetningu, prófunum og virkjun lausna hjá nýjum og núverandi viðskiptavinum
-
Samstarf við þróunarteymi, aðra ráðgjafa og hugbúnaðarsérfræðinga
-
Leita leiða til hagræðingar hjá viðskiptavinum með nýtingu á nýrri tækni eins og AI
-
Þjálfun og fræðsla fyrir notendur
Viðskiptalausnir
Innan Viðskiptalausna starfa yfir 140 sérfræðingar við verkefni tengd viðskiptakerfum og stafrænni umbreytingu íslenskra fyrirtækja. Við veitum framúrskarandi þjónustu sem er byggð á djúpri þekkingu á viðskiptakerfum og ferlum. Ráðgjafinn heyrir undir deildarstjóra ráðgjafar og þjónustu hjá Dynamics 365 F&O.
Starfið gæti hentað þér ef þú:
-
Hefur háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, fjármála, tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða aðra menntun sem nýtist í starfi
-
Hefur góða þekkingu á ferlum innan viðskiptakerfa fyrirtækja
-
Hefur reynslu af þátttöku í innleiðingum viðskiptakerfa
-
Ert fær(t) í skipulagningu og forgangsröðun verkefna
-
Hefur góða samskiptafærni
-
Ert drífandi og árangursmiðuð/aður/að
-
Hefur reynslu af Dynamics 365 F&O eða Dynamics AX
-
Hefur áhuga á að læra nýja hluti og starfa í kviku umhverfi tækninýjunga
-
Hefur skilning á þörfum mismunandi atvinnugreina, viðskiptavina og notenda í tækni
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
-
Tekið á móti umsóknum til 30. nóvember 2026
-
Yfirferð umsókna
-
Boðað í fyrstu viðtöl
-
Boðað í seinni viðtöl
-
Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
-
Öflun umsagna / meðmæla
-
Ákvörðun um ráðningu
-
Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Gunnur Jónsdóttir, forstöðumaður Dynamics F&O, gunnur.jonsdottir@advania.is / 4409000.