Sérfræðingur í Microsoft lausnum

Advania

Category
IT operations
Seniority
Senior
Posted
Deadline
Work mode
Hybrid
Location
Reykjavík; Akureyri
Apply Opens the original posting

Rekstrarlausnir Advania leitar að reynslumiklum sérfræðingi með víðtæka reynslu af rekstri Microsoft umhverfa.

Í deildinni starfa 16 sérfræðingar með mismunandi tæknilegar áherslur. Deildin sinnir rekstri Windows og Linux netþjóna hjá viðskiptavinum, rekstri í Azure, Entra ID og Microsoft 365, ásamt rekstri á öðrum tengdum þjónustum og greiningu og úrlausn tæknilegra vandamála.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur rekstur Microsoft umhverfa, hybrid og on-premise.

  • Windows netþjónar og þjónustur

  • Azure, Entra ID og Microsoft 365

  • Umbótaverkefni og hagræðingar í eldri umhverfum.

  • Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina.

  • Samskipti við viðskiptavini og eftirfylgni þjónustumála og verkefna.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð þekking á rekstri Microsoft umhverfa

  • Góð þekking á Windows Server og tengdum þjónustum

  • Góð þekking á Azure, Entra ID og Microsoft 365

  • Gott vald á PowerShell forritun

  • Hagnýt reynsla af notkun gervigreindartóla í vinnu

  • Vottuð þekking á sviði ofangreindra Microsoft lausna er skilyrði

  • 5+ ára reynsla af sambærilegu starfi

  • Góð enskukunnátta 

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 

  • Framúrskarandi þjónustulund

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.


Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 12. nóvember 2026

  2. Yfirferð umsókna

  3. Boðað í fyrstu viðtöl

  4. Boðað í seinni viðtöl

  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á

  6. Öflun umsagna / meðmæla

  7. Ákvörðun um ráðningu

  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri, helga.bjork.arnadottir@advania.is / 4409000.

Apply