Sérfræðingur í netkerfum

Advania

Category
DevOps and cloud
Seniority
Senior
Posted
Deadline
Work mode
Hybrid
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Advania leitar að reyndum sérfræðingi í netkerfum og netlausnum í leiðandi ráðgjafarhlutverk þar sem þú styður bæði viðskiptavini og innri teymi með sérfræðiþekkingu á viðkomandi sviði.

Þú átt í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga, öryggis- og tæknistjóra hjá viðskiptavinum okkar. Þú tekur þátt í að móta þjónustuframboð Advania og veitir ráðgjöf sem hefur raunveruleg áhrif á netumhverfi hjá fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Starfið krefst djúprar tækniþekkingar og hæfni til að miðla flóknum málum á skýran og ráðgefandi hátt.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðandi ráðgjöf, sala og eftirfylgni gagnvart viðskiptavinum

  • Hönnun, greining og uppsetning á netlausnum

  • Umsjón og ráðgjöf varðandi veikleikastjórnun og netöryggi

  • Aðstoða viðskiptavini við að uppfylla tæknilegar þarfir og kröfur

  • Innleiðingar nýrra viðskiptavina og netlausna

  • Rekstur og þróun á netlausnum viðskiptavina okkar

  • Þáttaka í þróun á lausnaframboði, einföldun vinnuferla og umbótum á þjónustu

  • Framþróun á þekkingu og vottunum

  • Náið samstarf við vörustjóra net- og öryggislausna, sölu- og rekstrarlausna ásamt öðrum sérfræðingum Advania

Eiginleikar sem við leitum að

  • Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni

  • Jákvætt hugarfar og lausnamiðuð nálgun

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Brennandi áhugi á upplýsingatækni

  • Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi

  • Íslensku- og enskukunnátta skilyrði

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólagráða eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi

  • Að lágmarki tveggja ára reynsla af sambærilegu starfi

  • Vottanir á borð við Cisco CCNA, CCNP, Fortinet NSE 4-7 eða sambærilegar eru kostur. Ef þær eru ekki til staðar aðstoðum við þig við að komast þangað

  • Reynsla og áhugi á netlausnum í Azure og/eða AWS er kostur

  • Reynsla af greiningu og hönnun netkerfa með áherslu á öryggi, áreiðanleika og hagkvæmni er kostur

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 3. nóvember 2026

  2. Yfirferð umsókna

  3. Boðað í fyrstu viðtöl

  4. Boðað í seinni viðtöl

  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á

  6. Öflun umsagna / meðmæla

  7. Ákvörðun um ráðningu

  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Þór Bjarnason, deildarstjóri Netlausna, hjortur.thor.bjarnason@advania.is / 4409000.

Apply