Upplýsingatæknisérfræðingur (iðnstýringar)

Alcoa Fjarðaál

Category
Mobile
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Work mode
On-site
Location
Reyðarfjörður
Apply Opens the original posting

Við leitum að öflugum einstaklingi til starfa við forritun, þróun og rekstur iðnstýringa. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd sjálfvirkni, PLC-forritun og skjámyndakerfum fyrir framleiðslu. Við vinnum aðallega með Rockwell Automation / Allen-Bradley búnað og lausnir og er reynsla af því umhverfi mikill kostur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Forritun, þróun og viðhald PLC-iðnstýringa
  • Þróun og viðhald HMI- og SCADA-skjámyndakerfa
  • Hönnun, prófanir og innleiðing nýrra lausna og virkni
  • Bilanagreining, rekstur og endurbætur á stýri- og sjálfvirknikerfum
  • Umsjón með högun, skjölun og stöðlun iðnstýrikerfa
  • Þátttaka í og verkefnastjórnun tæknilegra verkefna og umbóta
  • Greining og úrvinnsla gagna úr framleiðslukerfum
  • Tæknileg ráðgjöf og stuðningur við notendur
  • Samstarf við framleiðslu, viðhald og aðrar tæknigreinar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla á sviði sjálfvirkni, rafmagns-, tölvu- eða iðntækni eða sambærilegu sviði
  • Þekking eða reynsla af PLC-forritun og iðnstýringum
  • Reynsla af Rockwell Automation / Allen-Bradley búnaði og hugbúnaði er kostur
  • Þekking á iðnaðarnetum og samskiptum stýrikerfa er kostur
  • Góð hæfni til bilanagreiningar og lausnar tæknilegra vandamála
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og góð hæfni til teymisvinnu
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Íþrótta og meðferðastyrkir
  • Mötuneyti
  • Rútur frá helstu byggðarkjörnum
  • Velferðarkerfi

Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember

Apply