Senior forritari

Alda Öryggi ehf.

Category
Backend
Seniority
Senior
Posted
Work mode
Hybrid
Location
Kópavogur
Apply Opens the original posting

Við hjá Alda Öryggi erum að leita að reyndum Senior forritara í brúna hjá okkur sem vill taka þátt í að byggja upp alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki. Við höfum þróað tímamóta öryggisstjórnunarkerfi fyrir sjávarútveg sem hefur sannað gildi sitt á Íslandi og er í notkun hjá íslenskum og erlendum útgerðum. Nú stefnum við á frekari útbreiðslu erlendis og leitum að öflugum einstaklingi sem vill taka tæknilega forystu í þeirri vegferð.

Ef þú ert með sterka reynslu af margþættum hugbúnaðarkerfum, bakenda-arkitektúr og vilt hafa raunveruleg áhrif á að bjarga mannslífum, þá viljum við endilega heyra í þér

Helstu verkefni og ábyrgð

Við leitum að reyndum að reyndum senior forritara sem getur tekið tæknilega forystu í þróun Öldunnar, haft yfirsýn yfir verkefnin og borið ábyrgð á gæðum, öryggi og áframhaldandi þróun kerfisins.

Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða, frumkvæðis og góðra samskipta. Mikilvægt er að geta unnið náið með öðrum í teyminu.

Menntunar- og hæfniskröfur

Mikil reynsla í smíði hugbúnaðar og hugbúnaðarkerfum með og án notkunar gervigreindar. Skilningur á context-engineering.

Öryggisvitund: Þú þekkir XSS, CORS og örugga meðferð innskráningarupplýsinga.

Sveigjanleiki í gagnagrunnum: Þér líður vel í bæði SQL og Firestore.

Tæknistakkurinn

Bakendi: Node.js (Express.js), Typescript, MS-SQL, Firebase/Firestore.

Framendi: React, React Native, Zustand, Chakra UI.

Vöktun: Sentry (Error + APM).

Apply