Senior Software Engineer

Alda Safety

Category
Backend
Seniority
Senior
Posted
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

 Taktu forystu í kerfinu sem bjargar mannslífum!


Við hjá Alda Öryggi erum að leita að reyndum Senior forritara í brúna hjá okkur sem vill taka þátt í að byggja upp alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki. Við höfum þróað tímamóta öryggisstjórnunarkerfi fyrir sjávarútveg sem hefur sannað gildi sitt á Íslandi og er í notkun hjá íslenskum og erlendum útgerðum. Nú stefnum við á frekari útbreiðslu erlendis og leitum að öflugum einstaklingi sem vill taka tæknilega forystu í þeirri vegferð.


Helstu verkefni og ábyrgð

Við leitum að reyndum að reyndum senior forritara sem getur tekið tæknilega forystu í þróun Öldunnar, haft yfirsýn yfir verkefnin og borið ábyrgð á gæðum, öryggi og áframhaldandi þróun kerfisins.

Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða, frumkvæðis og góðra samskipta. Mikilvægt er að geta unnið náið með öðrum í teyminu.


Kröfur

Mikil reynsla í smíði hugbúnaðar og hugbúnaðarkerfum með og án notkunar gervigreindar. Skilningur á context-engineering. Öryggisvitund: Þú þekkir XSS, CORS og örugga meðferð innskráningarupplýsinga. Sveigjanleiki í gagnagrunnum: Þér líður vel í bæði SQL og Firestore.


Tæknistakkurinn

Bakendi: Node.js (Express.js), Typescript, MS-SQL, Firebase/Firestore.

Framendi: React, React Native, Zustand, Chakra UI.

Vöktun: Sentry (Error + APM).


Nánari upplýsingar

Ráðningarferli: Tvær umferðir. Spjall um sýn og vinnustaðamenningu með framkvæmdastjóra og tæknilegt spjall með tæknistjóra.

Það sem við bjóðum: Mikil áhrif í litlu teymi, sveigjanleiki og tækifæri til að þróa hugbúnað og byggja upp nýtt alþjóðlegt viðmið í öryggismálum sjómanna á heimsvísu.


Ef þú ert með sterka reynslu af margþættum hugbúnaðarkerfum, bakenda-arkitektúr og vilt hafa raunveruleg áhrif á að bjarga mannslífum, þá viljum við endilega heyra í þér


Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2026. Farið verður yfir umsóknir jafnóðum og þær berast og áskilur Alda Öryggi sér rétt til að ráða í starfið áður en umsóknarfrestur rennur út.

Apply