Sérfræðingur í þjónustuþróun og gæðamálum / Customer Experience & Quality Specialist

An Exciting Workplace

Category
QA and testing
Seniority
Mid-level
Posted
Work mode
Hybrid
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Sérfræðingur í þjónustuþróun og gæðamálum

Customer Experience & Quality Specialist

Hefur þú áhuga á gervigreind, tækni og að skapa framúrskarandi notendaupplifun?

Við leitum að öflugum, tæknilega þenkjandi og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt starf hjá íslensku tæknifyrirtæki í örum vexti.

Starfið sameinar þjónustu við viðskiptavini, þróun og sjálfvirknivæðingu þjónustuferla, gæðaprófanir hugbúnaðar og gæðaeftirlit með niðurstöðum gervigreindarlíkans.

Þú verður hluti af alþjóðlegu teymi og færð tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun vöru, gæði þjónustunnar og upplifun viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Bera ábyrgð á þjónustu við viðskiptavini og stuðla að framúrskarandi notendaupplifun.
  • Þróa, innleiða og sjálfvirknivæða þjónustuferla með nýtingu gervigreindar og annarra tæknilausna.
  • Skipuleggja og framkvæma gæðaprófanir (QA) á hugbúnaði, nýjum eiginleikum og uppfærslum.
  • Hafa eftirlit með gæðum og áreiðanleika niðurstaðna gervigreindarlíkana, greina frávik og fylgja þeim eftir.
  • Meta niðurstöður út frá skilgreindum gæðaviðmiðum og miðla niðurstöðum greininga til þróunarteymis.
  • Greina, skrá og fylgja eftir villum og umbótatækifærum í samstarfi við þróunarteymi.
  • Fylgjast með ánægju og virkni viðskiptavina og nýta gögn og endurgjöf til stöðugra umbóta.
  • Taka virkan þátt í þróun og umbótum á vöru og þjónustu.

Hæfni og reynsla

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund.
  • Mjög góð enskukunnátta í ræðu og riti ásamt góðri íslenskukunnáttu.
  • Reynsla af samstarfi í alþjóðlegu teymi.
  • Góð tæknileg færni og áhugi á hugbúnaði, gervigreind og sjálfvirknivæðingu.
  • Rík greiningarhæfni, nákvæmni og gagnrýnin hugsun.
  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Hæfni til að greina umbótatækifæri og fylgja breytingum eftir.
  • Reynsla af þjónustuþróun, sjálfvirknivæðingu eða gæðaprófunum hugbúnaðar er kostur.
  • Þekking á gervigreindarlíkönum, gagnagreiningu eða mati á gæðum niðurstaðna er kostur.

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og áhrifamikið starf í nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti.
  • Tækifæri til að vinna með gervigreind og nýjustu tækni.
  • Sjálfstæði og svigrúm til að móta og þróa eigin starfssvið.
  • Náið samstarf við alþjóðlegt teymi sérfræðinga.
  • Metnaðarfullt og sveigjanlegt starfsumhverfi með tækifærum til faglegs vaxtar.

Við leitum að einstaklingi sem hefur auga fyrir gæðum, sér tækifæri til umbóta og hefur metnað til að gera góða þjónustu enn betri með hjálp tækninnar.

Apply