Mechanical Subject Matter Expert
atNorth
- Category
- Data Centers
- Seniority
- Senior
- Posted
- Deadline
- Work mode
- On-site
- Location
- Reykjanesbær
atNorth heldur áfram að stækka í Reykjanesbæ og leitar að öflugum Mechanical Subject Matter Expert (M-SME) til að styrkja tækniteymi fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með sterkan tæknilegan bakgrunn og víðtæka þekkingu á véla- og kælikerfum. M-SME gegnir lykilhlutverki í að tryggja öruggan, áreiðanlegan og skilvirkan rekstur vélrænna kerfa gagnaversins. Starfið felur í sér tæknilega sérfræðiábyrgð á öllum stigum, allt frá framkvæmdum og gangsetningu til daglegs reksturs, viðhalds og stöðugra umbóta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tæknileg yfirumsjón með véla-, kæli- og tengdum kerfum gagnaversins með áherslu á rekstraröryggi og skilvirkni
- Leiða bilanagreiningu, rótargreiningar og úrlausn flókinna tæknilegra vandamála
- Skipuleggja og hafa umsjón með fyrirbyggjandi og leiðréttandi viðhaldi, viðgerðum og gangsetningu kerfa
- Veita tæknilega sérfræðiaðstoð við framkvæmdir, breytingar og þróun vélrænna kerfa
- Tryggja gæði viðhalds, samræmi við öryggisstaðla, verklagsreglur og gæðakröfur
- Fylgjast með rekstrargögnum og lykilmælikvörðum og leiða umbætur sem auka áreiðanleika og hagkvæmni
- Þróa og samræma tæknilega verkferla, viðhaldsáætlanir og staðla
- Miðla þekkingu, leiðbeina samstarfsfólki og styðja við faglega þróun teyma
- Taka þátt í samstarfi við þjónustuaðila, áætlanagerð og kostnaðareftirliti
- Taka þátt í bakvöktum samkvæmt fyrirkomulagi hverju sinni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði vélstjórnar, vélfræði, véltækni, vélvirkjunar eða kælitækni, eða sambærileg reynsla
- Að lágmarki 5 ára reynsla af rekstri og viðhaldi tæknikerfa í gagnaverum eða öðru rekstrarumhverfi þar sem miklar kröfur eru gerðar til rekstraröryggis
- Sterk tæknileg þekking á véla-, kæli- og loftræstikerfum, ásamt reynslu af viðhaldi, bilanagreiningu og gangsetningu
- Þekking á öryggis- og gæðastöðlum, breytingastjórnun og vinnu í ISO-vottuðu umhverfi
- Góð greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til að miðla þekkingu og vinna þvert á teymi
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
- Viðeigandi fag- og öryggisréttindi
- Hreint sakavottorð og bílpróf
Fríðindi í starfi
- Viðeigandi þjálfun, símenntun og tækifæri til faglegrar þróunar
- Heilsumiðað hugarfar með áherslu á jafnvægi milli starfs og einkalífs
- Íþróttastyrkur til að rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
- Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegt og fjölmenningarlegt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
atNorth er leiðandi norrænt fyrirtæki á sviði gagnavera sem býður upp á sjálfbæra þjónustu sem hentar meðal annars umfangsmikilli og afkastamikilli tölvuvinnslu.
Fyrirtækið nýtir bæði nýjustu tækni og aðstæður á Norðurlöndum til að stuðla að mikilli orkunýtni og sjálfbærum rekstri. Hjá atNorth fara saman tæknileg þekking, öflugur rekstur og áhersla á umhverfismál.
Starfsfólk atNorth vinnur í alþjóðlegu og tæknilega krefjandi umhverfi þar sem öryggi, áreiðanleiki, samvinna og stöðugar umbætur eru mikilvægir þættir í daglegum rekstri. Frekari upplýsingar um atNorth má finna á www.atnorth.com
Nánari upplýsingar veitir
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir – stefania@hagvangur.is