Rafmagns- eða vélaverkfræðingur

atNorth

Category
Data Centers
Seniority
Senior
Posted
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting
Rafmagns- eða vélaverkfræðingur

Vilt þú leiða tæknileg verkefni þar sem áreiðanleiki, orkunýting og vönduð hönnun skipta sköpum?

atNorth leitar að reyndum rafmagns- eða vélaverkfræðingi til að leiða og samræma hönnun vegna uppbyggingar og stækkunar gagnavera á Norðurlöndum. Í starfinu felst að fylgja eftir verkefnum frá fyrstu greiningu og hönnun til framkvæmda og tryggja að tæknilegar lausnir standist kröfur um gæði, kostnað, öryggi og sjálfbærni.

Þú munt vinna náið með öðrum teymum innan atNorth ásamt utanaðkomandi hönnuðum og ráðgjöfum. Starfið veitir tækifæri til að nýta verkfræðiþekkingu og verkefnareynslu í alþjóðlegu umhverfi og hafa bein áhrif á uppbyggingu og rekstraröryggi tæknilegra innviða.


Helstu verkefni og ábyrgð:
  • Leiða og samræma hönnun og innleiðingu staðlaðra tæknilausna í verkefnum atNorth á Norðurlöndum.
  • Meta tæknilegar lausnir og kostnað og veita ráðgjöf á öllum stigum verkefna.
  • Hafa umsjón með hönnunarferlinu og styðja við framkvæmdir með hliðsjón af ákvörðunaráföngum, kostnaðaráætlunum, sjálfbærni og kröfum um heilsu, öryggi og umhverfi (HSE).
  • Samræma vinnu utanaðkomandi arkitekta,  verkfræðinga og annarra ráðgjafa í samstarfi við sérfræðinga innan atNorth.
  • Taka þátt í mati á staðsetningum og uppbyggingarmöguleikum, bæði á nýjum lóðum og í núverandi húsnæði.
  • Yfirfara fjárfestingaráætlanir og meta tæknilega áhættu vegna nýbygginga, stækkana og endurbóta.
  • Styðja við greiningu tæknilegra atvika og nýta niðurstöður til að bæta hönnun og lausnir.
  • Greina tækifæri til bættrar orkunýtingar og minni umhverfisáhrifa

Menntunar og hæfniskröfur:
  • Háskólamenntun í rafmagns- eða vélaverkfræði.
  • 5-7 ára starfsreynsla á sviði rafmagns- eða vélaverkfræði.
  • Reynsla af innviða- eða byggingarverkefnum.
  • Þekking á raforkukerfum eða vélrænum kerfum, svo sem kæli- og loftræstikerfum, og skilningur á samspili tæknikerfa þar sem gerðar eru miklar kröfur um rekstrarsamfellu og áreiðanleika.
  • Grunnþekking á hússtjórnarkerfum og helstu þáttum byggingar- og burðarvirkjahönnunar.
  • Góð greiningarhæfni og geta til að leysa úr tæknilegum viðfangsefnum.
  • Góð samskiptahæfni og geta til að samræma vinnu ólíkra aðila.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að takast á við breytingar.
  • Mjög góð enskukunnátta í ræðu og riti.

Starfinu fylgja ferðalög á Norðurlöndum.


Um atNorth

atNorth byggir upp og rekur gagnaver á Norðurlöndum með áherslu á áreiðanleika, hagkvæmni og ábyrga nýtingu orku. Með vandaðri hönnun og skilvirkum rekstri styður fyrirtækið við vaxandi þörf viðskiptavina fyrir reikniafl og tæknilega innviði.


Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2026.
 
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur ástæða umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir kröfur starfsins.

Nánari upplýsingar veita Unnur Ýr Konráðsdóttir (unnur@vinnvinn.is) og Hilmar Garðar Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.

   

Electrical or mechanical engineer

Would you like to help shape the design and development of reliable, energy-efficient infrastructure across the Nordics?

atNorth is looking for an experienced Electrical or Mechanical Engineer to lead and coordinate design activities for data center development and expansion projects across the Nordic region.

Working in the design and engineering team within development, you will help ensure that technical solutions meet requirements for standardization, quality, cost, safety and sustainability. The role combines technical expertise with design coordination and commercial assessment, supporting projects from initial planning and design through construction.

This is an opportunity to apply your engineering and project experience in an international environment, with a direct influence on the performance, reliability and environmental impact of atNorth’s facilities.


Your Key Responsibilities:
  • Lead and implement atNorth’s standard design and infrastructure solutions across Nordic sites.
  • Provide technical and commercial expertise throughout the project lifecycle, evaluating design options, costs and risks.
  • Oversee the design phase and support construction, ensuring alignment with project approval stages, budgets, sustainability objectives and HSE requirements.
  • Coordinate external architects, engineers and consultants, working with internal teams to deliver practical, cost-effective solutions.
  • Support site selection and master planning by assessing opportunities for new developments and the use of existing sites and buildings.
  • Review Capex budgets and assess technical risks in expansion, retrofits, or new builds.
  • Support technical incident investigations and drive continuous design improvements.
  • Ensure sustainability opportunities are prioritized and environmental impact is minimized.

About you:
  • Bachelor‘s or Master‘s degree in Electrical or Mechanical Engineering.
  • 5-7 years of relevant experience in electrical or mechanical engineering.
  • Experience in infrastructure or construction projects.
  • Knowledge of electrical power systems or mechanical systems, such as cooling and ventilation, and an understanding of how technical systems work together to support reliable, continuous operations.
  • Basic knowledge of building management systems and civil or structural engineering principles.
  • Strong analytical and problem-solving skills.
  • Strong communication skills and the ability to coordinate work across different teams and disciplines.
  • A proactive, self-driven and adaptable approach.
  • Excellent written and spoken English.

The role involves travel across the Nordic region.


About atNorth

atNorth provides environmentally responsible, cost-effective and scalable data center services across the Nordics, including high-density colocation and facilities built to customer requirements.

Our goal is simple: to deliver more compute for a better world. Through innovative data center design, energy efficiency and efficient operations, we help businesses meet their computing needs while reducing costs and supporting their long-term infrastructure requirements.


Application deadline is on 16th of November 2026.
 
Please ensure that you include a CV as well as a cover letter detailing why you are interested in the role and how you fulfill the requirements.

For more information, please contact Unnur Ýr Konráðsdóttir (unnur@vinnvinn.is) and Hilmar Garðar Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) at Vinnvinn.
Apply