Vöru- og verkefnastjóri
Creditinfo
- Category
- Product management
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Location
- Reykjavík
Apply Opens the original posting
Creditinfo leitar að drífandi og framsýnum vöru- og verkefnastjóra í teymi vöru- og verkefnastýringar félagsins. Við sérhæfum okkur í sjálfvirkum ákvarðanatökum, gagnaöflun og greiningum sem skapa virði fyrir yfir 1600 íslensk fyrirtæki. Við höfum brennandi áhuga á að vera með vöruþróun á heimsmælikvarða og hikum ekki við að prófa nýjar aðferðir eða hugmyndir. Vörustjóri mun vinna með úrvalsliði sérfræðinga og hafa áhrif á nánast allar hliðar fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á vöruþróun Creditinfo, þ.m.t. framtíðarsýn, forgangsröðun og kröfugerð.
- Samskipti við viðskiptavini, þarfagreining og aðstoð við innleiðingar.
- Greiningar á notkun og markaðstækifærum.
- Skilgreining og eftirfylgni hugbúnaðarverkefna sem styðja við stefnu varanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði eða tölvunarfræði
- Greiningarhæfni og góð færni í framsetningu gagna
- Góðir samskiptahæfileikar og frumkvæði
- Þekking á fjármála- eða tryggingastarfsemi er kostur
Nánari upplýsingar veitir Lára Hannesdóttir, forstöðumaður Vöru- og verkefnastýringar, lara.hannesdottir@creditinfo.com. Umsóknarfrestur er til og með 1.desember 2026