DevOps sérfræðingur í hýsingarteymi
dk hugbúnaður ehf.
- Category
- DevOps and cloud
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Location
- Kópavogur
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum DevOps sérfræðingi til að ganga til liðs við hýsingarsvið dk hugbúnaðar. Starfið felur í sér hönnun, þróun og rekstur sjálfvirkra ferla og innviða, með það að markmiði að auka skilvirkni, stöðugleika og áreiðanleika hýsingarumhverfisins.
dk býður upp á heildarlausnir í hýsingarþjónustu og yfir 31.000 fyrirtæki eru í hýsingu hjá dk hugbúnaði. Í dag er hýsingarþjónusta dk hugbúnaðar ein sú stærsta á landinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun, þróun og innleiðing sjálfvirkra ferla fyrir uppsetningu, afhendingu og rekstur kerfa
- Uppbygging, rekstur og áframþróun innviða í hýsingar- og skýjaumhverfi
- Þróun og viðhald CI/CD-ferla og sjálfvirknilausna
- Vöktun, greining og umbætur á stöðugleika og afköstum kerfa
- Innleiðing nýrra tæknilausna og stöðugar umbætur á rekstrarferlum
- Samvinna og þekkingarmiðlun innan teymis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í DevOps, kerfisrekstri eða þróun innviða
- Góð reynsla af sjálfvirknivæðingu og rekstri upplýsingakerfa
- Þekking á CI/CD, skriftun (scripting) og Infrastructure as Code
- Þekking á skýjalausnum og rekstri innviða
- Reynsla af Docker, Kubernetes eða sambærilegum lausnum er kostur
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og hæfni til að vinna með öðrum
Við bjóðum
- Fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu tækniumhverfi
- Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar
- Frábæran vinnustað með metnaðarfullu starfsfólki
- Sveigjanlegt og nútímalegt vinnuumhverfi
Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember
Frekari upplýsingar veitir Hróar Hugosson, mannauðsstjóri, hroar@dk.is
dk hefur selt einn vinsælasta viðskiptahugbúnað landsins í aldarfjórðung, alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi, sem er þróað á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður og er leiðandi á sínu sviði.
Í dag eru notendur dk hugbúnaðar hérlendis um 11.000. Þeir eru úr flestum atvinnugreinum og fjölgar ört.
Hjá dk starfar samheldinn hópur fólks við þróun og þjónustu viðskiptalausna. Starfsfólk dk býr yfir miklum styrkleikum og um árabil hefur dk fengið viðurkenningar sem Framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo og sem Framúrskarandi fyrirtæki í rekstri í úttekt Keldunnar og Viðskiptablaðsins ásamt því að fá viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar síðastliðin þrjú ár.
Leiðarljós dk er að vera skemmtilegur og lifandi vinnustaður þar sem metnaðarfullir einstaklingar fá að njóta sín og þróast í starfi. Nánari upplýsingar um dk má finna á www.dk.is.