Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf
- Category
- Mobile
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Location
- Reykjavík
EFLA leitar að áhugasömum og metnaðarfullum sérfræðingi í hönnun iðnstýri- og hússtjórnarkerfa. Um er að ræða starf á iðnaðarsviði EFLU í fagteymi Stjórnkerfa. Í starfinu fengir þú tækifæri til að starfa í samhentu teymi reyndra sérfræðinga sem saman vinna að fjölbreyttum og spennandi verkefnum er tengjast hönnun stjórnkerfa í iðnaðarumhverfi og fyrir tæknikerfi bygginga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Forritun og prófanir á stjórnkerfum fyrir iðnað og byggingar.
- Hönnun og forritun ljósastýringa
- Forritun og prófanir hússtjórnarkerfa svo sem Siemens, Honeywell ofl.
- Forritun og prófanir iðnstýrikerfa svo sem Rockwell Automation, Schneider og Siemens
- Efnisval og samþykktir
- Þjónusta við viðskiptavini
- Verkefnastýring
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði hátækni-, rafmagns-, eða heilbrigðis-, verk - eða tæknifræði.
- Reynsla af rafmagni og iðnstýringum er kostur
- Áhugi á tækninýjungum er nauðsynleg
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Þjónustulipurð og færni í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Góður og hollur matur í hádeginu
- Vellíðunarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Hreyfistyrkur
- Fæðingarstyrkur
- Gleraugnastyrkur
- Símastyrkur
- Símaáskrift og heimatenging
EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni.
Starfsfólk samstæðunnar er um 600 talsins á Íslandi og erlendis. EFLA er með svæðisskrifstofur víðsvegar um landið og dótturfélög erlendis.
EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem um fjórðungur starfsfólks starfar. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.
Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.
EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri.
Nánari upplýsingar um vinnustaðinn
Nánari upplýsingar um stefnur EFLU og persónuverndaryfirlýsing til umsækjenda