Sérfræðingur í notendaþjónustu
Fagkaup
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Location
- Reykjavík
Fagkaup leitar að öflugum og þjónustulunduðum sérfræðingi í upplýsingatækni til að ganga til liðs við notendaþjónustu fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í lifandi og nútímalegu umhverfi.
Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað fyrir góðri þjónustu, sýnir frumkvæði og vill taka virkan þátt í áframhaldandi þróun upplýsingatæknimála hjá Fagkaupum. Starfið felst bæði í notendaþjónustu á þjónustuborði og kerfisstjórnun í nútímalegu Microsoft-umhverfi.
UT-teymi Fagkaupa þjónustar um 300 starfsmenn fyrirtækisins. Teymið er léttur og skemmtilegur hópur sérfræðinga sem leysir fjölþætt vandamál – og hjálpast að þegar á reynir.
Helstu verkefni
- Tæknileg aðstoð og þjónusta við notendur í Windows og Microsoft 365 umhverfi
- Öryggis- og aðgangsmál í Microsoft Entra, Intune og Active Directory
- Bilanagreining og úrlausn vandamála í hugbúnaði og vélbúnaði
- Uppsetning, þjónusta og viðhald á tölvum, útstöðvum og tengdum búnaði
- Gerð leiðbeininga fyrir starfsfólk til að nýta upplýsingatækni í sínum störfum
- Greining og úrbætur á ferlum með það að markmiði að auka skilvirkni og bæta þjónustu
- Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun UT-umhverfisins fyrirtækisins í samstarfi við Upplýsingatæknistjóra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni til að greina og finna lausnir
- Reynsla af Microsoft Entra, Intune og Exchange Online er kostur
- Reynsla af öryggismálum í Microsoft 365 er kostur
- Þekking á prenturum og prentumsýslu
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Öflugt félagslíf og virkt starfsmannafélag
- Árlegt heilsufarsmat
Starfsstöð: Klettagarðar 25, 104 Reykjavík
Fagkaup hvetur áhugasama að sækja um starfið, óháð aldri, kyni og uppruna. Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 15.nóv.