Senior Full Stack forritari
Hagar
- Category
- Backend
- Seniority
- Senior
- Posted
- Work mode
- Hybrid
- Location
- Reykjavík
Senior Full Stack forritari — Vertu hluti af stafrænni framtíð Haga hf.
Hagar hf., eitt stærsta fyrirtæki í smásölu á Íslandi, er að byggja upp stafræna framtíð sína og leitar nú að reynslumiklum full stack forritara sem hefur brennandi áhuga á að vinna í nútímalegu umhverfi.
Hjá Högum kappkostum við að þróa stafrænar lausnir sem bæta þjónustu við viðskiptavini auk þess að auka skilvirkni í rekstri samstæðunnar. Þannig stuðlum við að því að tryggja viðskiptavinum okkar í senn besta mögulega vöruverð og jákvæðustu notendaupplifunina.
Ef þú brennur fyrir að hanna og byggja heildstæðar lausnir — bæði á framenda og bakenda — í React og C#/.NET Core, og vilt leggja þitt af mörkum til nýsköpunar í íslenskri smásölu, þá viljum við heyra frá þér!
Hlutverk og ábyrgð:
- Hanna, þróa og viðhalda heildstæðum lausnum — bæði framenda í React og bakenda í C#/.NET Core.
- Hanna og innleiða API þjónustur sem uppfylla kröfur um öryggi, afköst og viðhaldshæfni.
- Vinna í þverfaglegu teymi að þróun stafrænna lausna fyrir smásölu og þjónustu.
- Taka þátt í ákvörðunum um hugbúnaðararkitektúr og leggja mat á tæknilegar lausnir.
- Huga að notendaupplifun og hönnun við þróun véf- og appviðmóta.
- Tryggja gæði kóða, m.a. með kóðayfirferðum og prófunum, og stuðla að faglegum vinnubrögðum í þróunarferli.
- Leiðbeina og styðja við aðra forritara í teyminu eftir þörfum.
- Bregðast við breytingum hratt og skilvirkt í samræmi við Agile aðferðafræði.
Við leitum að liðsfélaga sem:
- Hefur umtalsverða reynslu af full stack þróun, bæði á framenda og bakenda.
- Hefur sterka reynslu af React (og gjarnan React Native) fyrir framenda.
- Hefur sterka reynslu af C# og .NET Core fyrir bakenda, þ.m.t. hönnun RESTful API.
- Hefur þekkingu á gagnagrunnum og gagnalíkönum (t.d. SQL).
- Hefur reynslu af eða þekkingu á skýjaumhverfi (t.d. Azure eða AWS) er kostur.
- Er lausnamiðaður og með hæfni til að greina og leysa flóknar áskoranir á einfaldan hátt.
- Hefur góða tækniþekkingu og fylgist vel með nýjungum í hugbúnaðarþróun.
- Sýnir sjálfstæði, frumkvæði og hefur metnað fyrir faglegum vinnubrögðum.
- Hefur reynslu af leiðsögn eða mentorship gagnvart öðrum forriturum er kostur.
- Hefur brennandi áhuga á notendaupplifun og góðan skilning á mikilvægi hönnunar í hugbúnaði.
Við bjóðum þér:
- Tækifæri til að vera hluti af framsækinni stafrænni umbreytingu hjá leiðandi íslensku fyrirtæki.
- Hvetjandi og skapandi vinnuumhverfi þar sem tækni og nýsköpun eru í fyrirrúmi.
- Sveigjanlegur vinnutími og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
- Aðgangur að sterkum teymum sem deila þekkingu og hjálpa til við faglegan vöxt.
- Tækifæri til að hafa mótandi áhrif á tæknilega stefnu og framtíð Haga hf.
Við nálgumst teymisuppbyggingu með opnum hug og hvetjum því til umsóknar, hvort sem þú hefur reynslu af öllu ofangreindu eða telur þig einfaldlega geta vaxið til verksins.