Sérfræðingur notendaaðstoð - deild rafrænnar þjónustu HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Category
IT operations
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Location
Höfuðborgarsvæði
Apply Opens the original posting

Ert þú að leita að spennandi starfi í tæknimálum?

Við erum að leita að tæknisinnuðum og drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund í tímabundið starf í deild rafrænnar þjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Deildin heyrir undir svið fjármála og rekstrar sem staðsett er í Álfabakka 16. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember eða eftir nánara samkomulagi.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón og eftirlit með vél- og hugbúnaði heilsugæslunnar

  • Stofnun og breytingar á notendum tölvukerfis HH, skipulagning og vandamálagreining

  • Aðstoð við notendur

  • Samskipti við sérfræðinga innan og utan stofnunar vegna tölvumála

Hæfniskröfur

  • Góð þekking á Microsoft notendahugbúnaði skilyrði

  • Þekking á Linux netþjónum kostur

  • Reynsla af rekstri tölvubúnaðar kostur

  • Eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar

  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugafar

  • Fagleg, markviss og öguð vinnubrögð

  • Brennandi áhugi á tölvum og tækni

  • Mjög góð færni í íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Apply