Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!

Hringdu

Category
IT operations
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Við auglýsum eftir framúrskarandi einstaklingi í þjónustuver Hringdu. Um er að ræða 100% starf. Aldurstakmark er 20 ár.

Starfið

Í starfinu felst að aðstoða viðskiptavini Hringdu við allt sem tengist okkar vörum og þjónustu. Þú sýnir jákvæðni, hugsar í lausnum, elskar mannleg samskipti og vilt umfram allt veita bestu þjónustuna!

Hvað ertu að fara gera?

  • Aðstoða viðskiptavini með alls kyns tæknileg vandamál í tengslum við internet, farsíma & heimasíma
  • Leysa einföld reikningamál
  • Afgreiða pantanir og breytingar á þjónustum
  • Eiga samskipti við okkar helstu þjónustuaðila
  • Tækla ýmis önnur verkefni sem koma upp á

Ef þú hefur:

  • Gaman af því að hjálpa
  • Einhverja þekkingu á tækni & tölvum
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Góða samskiptahæfileika og mikla þjónustulund
  • Frumkvæði og heiðarleika

Ættirðu að sækja um hjá okkur! 

Þú getur skilað inn umsókn ásamt ferilskrá í Alfreð umsóknarkerfinu.

 

Um Hringdu

Hringdu er lítið en ört vaxandi fjarskiptafyrirtæki þar sem hæfileikaríkir einstaklingar geta unnið sig upp í starfi. Hér vinna fáar hendur mörg og mismunandi verk og er því starfið fjölbreytt, reynslumikið og ríkt af ábyrgð. Við fáum sendan mat í vinnuna fimm daga vikunnar og skálum alla föstudaga. Starfsmannafélagið Svaraðu sér fyrir góðu skemmtanalífi og hér elska allir kaffi, ketti & hunda.

Hringdu hefur hlotið viðurkenningu sem Fyrirmyndafyrirtæki VR árin 2017, 2018 og 2019 og sem Fyrirtæki ársins 2020, 2021, 2022, 2024 & 2025.

Ánægðustu viðskiptavinir í net- og símaþjónustu eru hjá Hringdu 2019-2026 samkvæmt Meðmælingu Maskínu.

Fríðindi í starfi

  • Símtækjastyrkur
  • Nudd á vinnutíma
  • Aðgangur að Hopp hjólum
  • 7 tíma vinnudagur
  • Net- og símaáskrift
  • Líkamsræktarstyrkur
Apply