Hugbúnaðarsérfræðingur

Íslandsbanki

Category
Backend
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Location
Kópavogur
Apply Opens the original posting

Markaðs- og verðbréfalausnir Íslandsbanka leita að skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt starf við rekstur og þróun hugbúnaðar í öflugu og skapandi starfsumhverfi. Við myndum góða liðsheild sem tekst á við fjölbreyttar áskoranir og vinnur náið með viðskiptaeiningum og öðrum hagsmunaaðilum, jafnt innan sem utan bankans.

Við leggjum áherslu á notendamiðaða þróun, gott samstarf og að skila lausnum sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.

Deildin ber ábyrgð á rekstri, viðhaldi og áframhaldandi þróun hugbúnaðarlausna fyrir verðbréfa- og markaðsviðskipti Íslandsbanka.

Starfið felur því bæði í sér að tryggja stöðugan og traustan rekstur núverandi lausna og taka þátt í áframhaldandi þróun þeirra. Samhliða rekstrinum eiga sér stað miklar breytingar á þessu sviði, meðal annars með aukinni sjálfvirknivæðingu, endurnýjun lausna og bættu stafrænu aðgengi.

Íslandsbanki er fjölskylduvænn vinnustaður sem býður upp á sveigjanlegt og gott vinnuumhverfi. Tækniumhverfi okkar er nútímalegt og við leggjum ríka áherslu á gæði og áreiðanleika lausna, sjálfvirknivæðingu og stöðugar umbætur.

Helstu verkefni:

  • Samþætting og rekstur aðkeyptra lausna
  • Villugreining, úrbætur og bestun viðskiptaferla
  • Þátttaka í vöruþróun lausna fyrir stafræna þjónustu ásamt nauðsynlegri innviða uppbyggingu
  • Sjálfvirknivæðing hugbúnaðarferla, afhendinga, prófana og reksturs
  • Önnur verkefni vöruteyma

Hæfniskröfur:

  • Lausnamiðuð og gagnrýnin hugsun
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og drifkraftur
  • Hugarfar til að læra á nýja tækni og forritunarmál, úrlausn vandamála og greiningarhæfni.
  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Þórsdóttir forstöðumaður hjá Stafrænni þróunn og gagnastýringu, (thordis.thorsdottir@islandsbanki.is) og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningarstjóri (gudlaugurh@islandsbanki.is).

Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.

Við hvetjum umsækjendur til að sækja um sem fyrst - við áskiljum okkur rétt til þess að byrja að vinna úr umsóknum áður en umsóknarfrestur rennur út.

Apply