Stafrænn hönnuður hjá Júní

Júní

Category
Design and UX
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Work mode
Hybrid
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Sérhver díll (e. pixel) á skilið þína athygli!
Við hjá Júní erum að leita að forvitnum hönnuði til að ganga til liðs við okkur tímabundið til eins árs, þó með möguleika á framtíðarráðningu.

Við erum á fullu að hanna og smíða stafrænar lausnir fyrir mörg af framsæknustu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Verkefnin eru fjölbreytt, metnaðarfull og skapandi. Við vinnum að stórum sem smáum verkefnum sem snerta á vöruhönnun, mörkun, markaðsvefum og öppum. 

Dagur í lífi hönnuðar hjá Júní gæti innifalið að uppfæra hönnunarkerfi, búa til prótótýpur, vinna með kúnnum að notendaflæðum eða þjálfa vöðvana í foosball í pásunni!

Ef þú hefur áhuga og langar til að taka þátt í skemmtilegri hönnunarferð – sendu okkur þá umsókn!

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hönnun framúrskarandi stafrænna lausna í samstarfi við ráðgjafa og forritara Júní
  • Fjölbreytt verkefni eins og markaðsvefir, stór notendamiðuð vefkerfi, öpp og hönnunarkerfi
  • Náið samstarf við viðskiptavini, hag- og samstarfsaðila að skemmtilegum og skapandi verkefnum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Afburðagóð færni í Figma
  • Reynsla af því að nýta gervigreind við hönnun, prótótýpur, notendaflæði og hönnunarkerfi
  • Gott vinnuskipulag og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Sjálfstæð vinnubrögð 
  • Metnaður og áhugi á að efla eigin færni og kynna sér nýjustu strauma og stefnur í hönnun 
  • Kostur ef menntun í grafískri hönnun, UI & UX eða sambærilegu

Fríðindi í starfi

  • Fallegt og kósý vinnuumhverfi
  • Sveigjanlegur vinnutími og heimavinna í boði
  • Sími og internet, íþrótta- og samgöngustyrkir og annað swag
  • Aðgangur að líkamsrækt, skyr, ávextir og annað snarl
  • Fagleg endurgjöf og tækifæri til að vaxa í starfi
Apply