Onboard
Back to all jobs

Verkfræðingur í vöruþróun

Kerecis · Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík

Other Senior
Posted
Application deadline
Apply on company site

Verkfræðingur í vöruþróun

Verkfræðingur í vöruþróun hjá Kerecis er hluti af reyndu teymi sérfræðinga í lækningatækjum sem bera ábyrgð á að þróa og koma á markað næstu kynslóð lækningartækja til meðferðar á mismunandi tegundum sára. 

Verkfræðingur í vöruþróun hefur aðsetur á skrifstofu Kerecis í Reykjavík og heyrir undir deildarstjóra vöruþróunar. Um er að ræða fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróa nýjar vörur, rafbúnað, og aðrar tæknilausnir fyrir Kerecis.
  • Sannreyna og skjalfesta að vörurnar uppfylli öll skilyrði lækningatækja samkvæmt gæðakerfi Kerecis.
  • Taka þátt í hugmyndavinnu, rannsóknum og nýsköpunarvinnu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • B.Sc. eða M.Sc í verkfræði eða sambærilegu fagi.
  • Æskilegt að viðkomandi sé með a.m.k. 5 ára reynslu í vöruþróun.
  • Reynsla af hönnun og þróun stafrænna og hliðrænna rása (PCB).
  • Reynsla af notkun CAD, og hugbúnaðar fyrir prófanir og mælingar.
  • Áhugi á vöruþróun, tækninýjungum og líffræði.
  • Skipulag, frumkvæði, drifkraftur og góð samskiptahæfni.
  • Reynsla af vöruþróun á lækningatækjum er kostur.