Tæknisérfræðingur

Korda

Category
DevOps and cloud
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Korda er nýtt sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar sem tók til starfa 1. september síðastliðinn. Félagið sameinar rekstur mikilvægra fjarskipta- og öryggisinnviða landsins til að auka skilvirkni og styrkja rekstraröryggi. Korda annast m.a. rekstur fjarskiptasæstrengja sem tengja Ísland við umheiminn, Tetra-öryggisfjarskiptakerfisins og tæknikerfa sem styðja við starfsemi Neyðarlínunnar og viðbragðsaðila um land allt.

Korda óskar nú eftir reyndum sérfræðingi til að sinna þróun umfangsmikilla fjarskiptakerfa fyrir næstu kynslóð öryggis- og fjarskipta með áherslu á kjarnaeiningar sem munu byggja á farnetstækni. Viðkomandi gegnir lykilhlutverki í þróun og innleiðingu kerfa sem eru grundvallaratriði fyrir almannaöryggi og gefst tækifæri til að hafa áhrif og móta starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í framþróun fjarskiptakerfa fyrir almannaöryggi til næstu kynslóðar
  • Þáttttaka í samþættingu nýrra fjarskiptakerfa við núverandi kerfi
  • Þátttaka í almennri stafrænni þróun og innleiðingu nýjunga í fjarskiptatækni ásamt net- og upplýsingaöryggi og tengingu við gervigreind
  • Þátttaka í tæknilegum verkefnum tengdum rekstri fjarskiptakerfa Korda
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. tækni- eða verkfræði
  • Reynsla af sambærilegu starfi með áherslu á farnetstækni
  • Þekking á uppbyggingu, samþættingu og rekstri stórra fjarskiptakerfa
  • Kunnátta á samskiptareglum, högun og öryggi fjarskiptakerfa
  • Frumkvæði og áhugi á nýjungum í fjarskiptakerfum og stafrænum lausnum
  • Metnaður til að gegna mikilvægu hlutverki í síbreytilegu umhverfi
  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í hóp
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna vel undir álagi
  • Hreint sakavottorð

Korda rekur umfangsmikil upplýsingakerfi og fjarskiptabúnað um allt land með miðstöð netkerfa í Reykjavík. Starfsvettvangur er að mestu leyti í Reykjavík en starfinu geta fylgt ferðalög. Mikil áhersla er lögð á öruggan rekstur kerfa og fyrirbyggjandi viðhald. Viðkomandi starfsmaður mun fá þjálfun til að öðlast nauðsynlega þekkingu á kerfum félagsins og fá tækifæri til fylgjast með því sem er að gerast í heimi fjarskiptaneta. Hafin er vinna við að innleiða næstu kynslóðir fjarskiptakerfa sem byggja á farsímatækni og mun viðkomandi gegna lykilhlutverki í innleiðingu þeirra.

Markmið Korda er að vera traustur vinnustaður fyrir hæft starfsfólk þar sem þjónustuvilji og hröð og skjót viðbrögð fara saman. Korda leggur mikla áherslu á faglega þekkingu starfsmanna og fjárfestir í fræðslu og þjálfun með skýr markmið í huga.

Apply