Onboard
Back to all jobs

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi

Landsbankinn · Reykjastræti 6

Security Mid-level
Posted
Application deadline
Apply on company site

Við leitum að öflugum einstaklingi í starf sérfræðings í upplýsingaöryggi í Kerfisrekstri á Upplýsingatæknisviði Landsbankans.


Kerfisrekstur ber ábyrgð á öruggum og traustum rekstri grunnkerfa bankans. Meginhlutverk deildarinnar er að hámarka gæði og uppitíma tölvukerfa og tryggja öruggt aðgengi viðskiptavina og starfsfólks að kerfum og gögnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Rekstur og eftirlit með öryggis- og varnarkerfum
  • Greining á netógnum, veikleikum og öryggisatvikum
  • Viðbrögð við netöryggisatvikum og eftirfylgni með úrbótum
  • Gerð og viðhald áhættumats og verklags
  • Öryggisrýni, ráðgjöf og miðlun þekkingar í samstarfi við innri og ytri sérfræðinga

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla á sviði upplýsingatækni, kerfisreksturs, netöryggis eða tengdu sviði
  • Áhugi á upplýsingaöryggi og vilji til að þróast á því sviði
  • Hæfni til að greina vandamál og vinna markvisst að lausnum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri hæfni í samskiptum og miðlun þekkingar
  • Reynsla af öryggislausnum, veikleikastýringu eða öryggisvöktun er kostur