Onboard
Back to all jobs

Sérfræðingur í Vélbúnaðarþjónustu

Landsbankinn · Reykjastræti 6

IT operations Mid-level
Posted
Application deadline
Apply on company site

Við leitum að öflugum einstaklingi í starf sérfræðings í Vélbúnaðarþjónustu sem tilheyrir Kerfisrekstri á Upplýsingatæknisviði Landsbankans.

Kerfisrekstur ber ábyrgð á öruggum og traustum rekstri grunnkerfa bankans. Meginhlutverk deildarinnar er að hámarka gæði og uppitíma tölvukerfa og tryggja öruggt aðgengi viðskiptavina og starfsfólks að kerfum og gögnum. Hlutverk Vélbúnaðarþjónustu er rekstur og umsjón á útstöðvum, VDI og jaðarbúnaði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppsetning og viðhald tölvubúnaðar starfsfólks
  • Uppsetning og dreifing hugbúnaðar
  • Rekstur og uppsetning ýmiss tækjabúnaðar, s.s. númerkakerfa og hraðbanka
  • Rekstur á VDI-umhverfi bankans

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Tæknimenntun í tölvurekstri er kostur
  • Reynsla af rekstri tölvukerfa er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Almenn ökuréttindi