RAFVIRKI / RAFMAGNSSÉRFRÆÐINGUR

Mögnum

Category
Data Centers
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Work mode
On-site
Location
Akureyri
Apply Opens the original posting

atNorth er í áframhaldandi vexti á Akureyri og leitar að rafvirkjum eða rafmagnssérfræðingum sem vilja taka þátt í uppbyggingu og rekstri öflugra gagnavera.

Við kunnum að meta góða liðsfélaga sem eru áhugasamir um að læra og vaxa í heimi gagnavera og gervigreindar.

Áreiðanleg rafkerfi eru mikilvægur hlekkur í starfsemi gagnavera okkar og mikilvægt að uppsetning þeirra, viðhald og rekstur séu með skilvirkum og öruggum hætti.

Þetta starf er ráðning til framtíðar og fullt stöðugildi. Starfið hentar öllum kynjum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinna viðhaldi, breytingum og uppsetningu á búnaði og tæknikerfum gagnaversins
  • Annast rekstur, eftirlit og viðhald rafbúnaðar og annarra tæknilegra stoðkerfa
  • Framkvæma fyrirbyggjandi viðhald og reglubundnar prófanir samkvæmt viðhaldsáætlunum og verklagsreglum
  • Greina bilanir, annast bilanaleit og viðgerðir á raf- og stoðkerfum gagnaversins
  • Veita tæknilegan stuðning við framkvæmdir, breytingaverkefni og daglegan rekstur
  • Taka þátt í gangsetningu, prófunum og afhendingu nýrra kerfa og búnaðar
  • Stuðla að öruggum vinnubrögðum og taka virkan þátt í umbótum á verkferlum og vinnulagi
  • Veita viðskiptavinum faglega og skilvirka þjónustu og vinna úr tæknilegum beiðnum
  • Sinna öðrum verkefnum í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun í rafvirkjun, önnur tengd framhaldsmenntun kostur
  • Þekking og reynsla af lágspennu
  • Víðtæk þekking á virkni rafkerfa og búnaðar
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna þvert á teymi
  • Sjálfstæð skipulögð vinnubrögð og frumkvæði
  • Umbótahugarfar, örygggisvitund og þjónustulund
  • Góð kunnátta í ensku, bæði skrifleg og töluð
  • Hreint sakavottorð

Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru

  • Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
  • Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
  • Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
  • Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum

Umsóknarfrestur er til og með 17.nóvember 2026

Sótt er um á www.mognum.is

Með umsókn þarf að fylgja með ítarleg ferilsskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein yrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Um atNorth

atNorth er leiðandi norrænt fyrirtæki á sviði gagnavera sem býður upp á sjálfæra og afkastamikla þjónustu og sérsniðnar lausnir fyrir leiðandi fyrirtæki og stofnanir á Íslandi, í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.

Sjálfbærni er kjarninn í starfsemi atNorth. Gagnaver fyrirtækisins eru knúin með endurnýjanlegri orku og hönnuð samkvæmt meginreglum hringrásarhagkerfisins.

Með nýstárlegri hönnun, skilvirkri orkunýtingu og snjöllum rekstri tryggir atNorth örugga, áreiðanlega og afkastamikla innviði fyrir viðskiptavini sína.

Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík og fyrirtækið rekur átta gagnaver á Norðurlöndum. Jafnframt eru ný gagnaver í uppbyggingu í Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð og Noregi.

Hjá atNorth koma saman framúrskarandi tækniþekking og vinnustaðamenning sem byggir á samvinnu, ábyrgð og trausti. Fyrirtækið leggur áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þróast í starfi, taka frumkvæði og hafa raunveruleg áhrif á starfsemina.

Með því að ganga til liðs við alþjóðlegt teymi atNorth færð þú tækifæri til að taka þátt í mótun framtíðar sjálfbærra stafrænna innviða.

Frekari upplýsingar má finna á atNorth.com og síðu fyrirtækisins á LinkedIn.

English below

Apply