DevOps sérfræðingur / Senior DevOps Engineer
Motus
- Category
- DevOps and cloud
- Seniority
- Senior
- Posted
- Deadline
- Location
- Reykjavík
Við leitum að reyndum og drífandi DevOps sérfræðingi til að styrkja tækniteymið okkar.
Við vinnum í metnaðarfullu Scrum umhverfi í nánu samstarfi við vörustýringu og leggjum áherslu á nýjustu tækni, sjálfvirkni og örugga afhendingu hugbúnaðar. Ef þú hefur brennandi áhuga á DevOps, skýjalausnum og stöðugum betrumbótum á rekstrarferlum, þá gæti þetta verið rétta tækifærið fyrir þig.
Motus er á spennandi vegferð sem miðar að því að finna nýjar leiðir til að styrkja gæði kröfustýringar, og hún haldi áfram að vera ómissandi þáttur í vexti og viðgangi fyrirtækja á landinu öllu. Hlutverk Motus er að koma fjármagni á hreyfingu á hagkvæman, nútímalegan og aðgengilegan hátt. Við beitum til þess nýjustu tækni og sérþekkingu og leitum stöðugt bestu lausna í þágu viðskiptavina og samfélags.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning og viðhald CI/CD ferla og sjálfvirknivæðing þróunar- og rekstrarferla
- Umsjón með skýjalausnum og innviðum (Azure, Kubernetes, Docker)
- Þátttaka í mótun og innleiðingu tæknistefnu Motus
- Samvinna við þróunarteymi til að tryggja örugga og skilvirka afhendingu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða tengdum greinum
- Djúp þekking á DevOps hugmyndafræði og verkfærum: CI/CD, GitHub Actions, Terraform, Helm o.fl.
- Tæknistakkur: .NET, C#, Azure, SQL Server, Kubernetes, Docker, Kafka/ServiceBus, GitHub, React, Databricks og Python
- Þekking og reynsla af Event Driven Architecture,service-oriented architecture, Elastic Search, Azure og Docker
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, frumkvæði og þjónustulund
- Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hóp
- Skipulögð og öguð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember 2026
Frekari upplýsingar veitir Rúnar Skúli Magnússon, forstöðumaður vöruþróunar í runar@motus.is.
Um Motus:
Motus er leiðandi fyrirtæki á sviði kröfuþjónustu og hluti af Ásum. Ásar eru vaxandi samstæða öflugra félaga sem byggja á stafrænum grunni, trausti og öryggi. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur fólks sem leggur sig fram um að starfa af heilindum og fagmennsku. Jafnrétti, jákvæð samskipti og gagnkvæm virðing eru grundvöllur starfseminnar. Við gætum fyllsta trúnaðar við vinnslu starfsumsókna og persónuupplýsinga.