Við leitum að kerfisstjóra!
Myllan
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Location
- Reykjavík
Apply Opens the original posting
Hefur þú brennandi áhuga á upplýsingatækni, gaman af áskorunum og finnst skemmtilegt að finna lausnir? Þá viljum við heyra frá þér!
Við hjá Myllunni leitum að öflugum og lausnamiðuðum kerfisstjóra til að styrkja upplýsingatækniteymið okkar.
Hjá okkur færðu að vinna í fjölbreyttu og umfangsmiklu UT-umhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins. Þú verður hluti af samhentu teymi sem sér um rekstur, þróun og öryggi upplýsingakerfa fyrir Mylluna og tengd fyrirtæki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rekstur og viðhald netþjóna, netkerfa og upplýsingakerfa.
- Umsjón með Microsoft 365, Windows Server og Active Directory.
- Bilanagreining og tæknileg aðstoð við notendur.
- Þátttaka í þróun, sjálfvirknivæðingu og innleiðingu nýrra tæknilausna.
- Eftirlit með rekstri og upplýsingaöryggi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hefur að lágmarki 3 ára reynslu af upplýsingatækni og kerfisrekstri.
- Hefur góða þekkingu á Microsoft-umhverfi og netkerfum.
- Hefur áhuga á Cisco, VMware, Linux og upplýsingaöryggi.
- Hefur góða íslenskukunnáttu í töluðu og rituðu máli.
- Ert sjálfstæð(ur), lausnamiðuð/lausnamiðaður og átt auðvelt með samskipti.
- Hefur hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og spennandi verkefni.
- Gott starfsumhverfi og samhentur hópur.
- Tækifæri til að þróast í starfi og hafa raunveruleg áhrif.
- Frábært samstarfsfólk og öflugt starfsmannafélag
- Frábært mötuneyti
Við metum reynslu, frumkvæði og áhuga á tækni.
Hljómar þetta eins og eitthvað fyrir þig?
Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember 2026.
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um.