Sérfræðingur í stofnkerfum

Míla hf

Category
DevOps and cloud
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Work mode
On-site
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Hefurðu áhuga á fjarskiptum og gaman af því að finna út hvernig hlutirnir virka? Við leitum að tæknisinnuðum liðsfélaga í rekstur og uppbyggingu stofnkerfa Mílu.

Í starfinu færðu að vinna með fjarskiptabúnað, greina bilanir og koma nýjum tengingum í gang. Verkefnin eru fjölbreytt og henta þér sem finnst gaman að leysa tæknilegar áskoranir, vinna með öðrum og læra nýja hluti.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur rekstur og viðhald stofnnets Mílu
  • Bilanagreining og viðgerðir
  • Uppsetning, gangsetning og prófanir á nýjum búnaði og samböndum
  • Þátttaka í viðhaldi og rekstri innri kerfa
  • Þátttaka í uppbyggingu og þróun fjarskiptainnviða

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Áhugi á tækni og vilji til að læra og þróast í starfi
  • Þekking á IP-netkerfum, Ethernet og ljósleiðaratækni er kostur
  • Þekking á fjarskiptaumhverfi og reynsla af fjarskiptabúnaði og uppsetningu sambanda er kostur
  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni
  • Hæfni til að greina vandamál og vinna yfirvegað undir álagi
  • Hæfni til að miðla tæknilegum upplýsingum á skýran hátt
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Fríðindi í starfi

  • 🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
  • 🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
  • 🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
  • 💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi
  • 🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og afþreyingarherbergi með billjarðborði og golfhermi
  • 🚲 Samgöngustyrkur til að styðja virka samgöngumáta

Míla er íslenskt fjarskiptainnviðafyrirtæki sem veitir fjarskiptafélögum aðgang að innviðum um allt land. Við vinnum að því að tengja fólk og fyrirtæki og byggja upp fjarskipti til framtíðar. Hjá okkur starfar fólk með fjölbreytta reynslu sem hefur gaman af tækni, teymisvinnu og því að finna góðar lausnir.

Í anda jafnréttisstefnu Mílu hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um, óháð kyni. Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðsdeild á mannaudur@mila.is.

Apply