Þjónustufulltrúi Noona Iceland

Noona Iceland

Category
IT operations
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Hefur þú áhuga á tækni, brennur fyrir góða þjónustu og hefur gaman af því að leysa vandamál? Þá gætir þú verið næsti þjónustufulltrúi hjá Noona Iceland.

Noona Iceland leitar að öflugum þjónustufulltrúa í 100% starf til að ganga til liðs við þjónustuteymið okkar.

Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að veita framúrskarandi þjónustu, hefur gaman af því að leysa vandamál og er óhræddur við áskoranir. Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með fjölbreyttum viðskiptavinum og taka virkan þátt í að bæta upplifun þeirra af lausnum Noona.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita framúrskarandi þjónustu í gegnum síma, tölvupóst og netspjall
  • Aðstoða viðskiptavini við notkun á lausnum Noona og leysa úr fyrirspurnum
  • Greina vandamál og finna hagkvæmar lausnir í samstarfi við viðskiptavini og samstarfsfólk
  • Taka þátt í þróun og umbótum á þjónustuferlum og þekkingargögnum

Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur ríka þjónustulund og á auðvelt með samskipti
  • Sýnir frumkvæði og vinnur sjálfstætt
  • Hefur áhuga á tækni og er óhræddur við að prófa sig áfram
  • Er lausnamiðaður og hefur góða greiningarhæfni
  • Getur unnið vel undir álagi þegar mikið er að gera
  • Hefur gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Kostur ef þú hefur

  • Reynslu af þjónustustörfum
  • Þekkingu á hugbúnaði eða SaaS-lausnum
  • Reynslu af þjónustukerfum, CRM eða sambærilegum kerfum

Hvað bjóðum við upp á?

  • Fjölbreytt og krefjandi starf í ört vaxandi tæknifyrirtæki
  • Öflugt og samheldið teymi þar sem fólk hjálpast að
  • Tækifæri til að læra, þróast og hafa raunveruleg áhrif
  • Góðan vinnustað með skemmtilegum starfsanda
  • Niðurgreiddur hádegismatur og önnur fríðindi

Aðrar upplýsingar

Noona Iceland annast rekstur og þjónustu Noona á íslenskum markaði. Félagið er hluti af fjártæknisviði Ásar hf., ásamt Síminn Pay og Greiðslumiðlun Íslands. Ásar eru vaxandi samstæða öflugra félaga sem byggja á stafrænum grunni, trausti og öryggi

Ef þú hefur áhuga á að verða hluti af Noona teyminu viljum við gjarnan heyra frá þér. Sendu okkur ferilskrá og stutta kynningu á sjálfri/sjálfum þér.

Sótt er um starfið á vef Ása. Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember 2026.  

Nánari upplýsingar veitir mannaudur@asar.is 

Við metum umsóknir jafnóðum og þær berast og boðum í viðtöl eftir því sem við á. Ráðið verður í starfið þegar við finnum rétta einstaklinginn í hlutverkið.

Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um. 

Apply