Kerfisstjóri í rekstrarþjónustu
Origo
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Location
- Iceland
Við leitum að öflugum kerfisstjóra í rekstrarþjónustu Origo sem vill taka þátt í að reka, þróa og bæta upplýsingatækniumhverfi viðskiptavina okkar. Hjá okkur starfar hópur sérfræðinga sem hefur metnað fyrir því að tryggja öryggi, stöðugleika og góðan rekstur upplýsingatæknikerfa. Ef þú hefur djúpan skilning á tækni, hefur gaman af því að finna rót vandamála, leysa þau og gera hlutina betur næst gæti þetta verið tækifæri fyrir þig!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur, vöktun og viðhald upplýsingatækniumhverfa viðskiptavina.
- Rekstur og umsýsla Microsoft og Linux - umhverfa.
- Umsýsla Active Directory, Microsoft Entra ID og Microsoft 365.
- Uppsetning, rekstur og uppfærsla netþjóna og tengdra innviða.
- Umsýsla með afritun, uppfærslur og aðra þætti sem tryggja öruggan og stöðugan rekstur.
- Þátttaka í breytingum, innleiðingum og umbótaverkefnum hjá viðskiptavinum.
- Skráning lausna og uppbygging rekstrarskjölunar og þekkingar.
- Samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini og samstarfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Við gerum ekki ráð fyrir að einn einstaklingur kunni allt en viljum hinsvegar gjarna sjá:
- Reynslu af kerfisstjórnun eða rekstri upplýsingatæknikerfa
- Góða þekkingu á Microsoft-umhverfi: Windows Server, Active Directory, Entra ID og Microsoft 365
- Áhuga og skilning á upplýsingaöryggi
- Góða íslensku- og enskukunnáttu
- Þjónustulund, gott skipulag og sjálfstæð vinnubrögð
- Það er síðan stór plús ef þú hefur þar að auki:
- Þekkingu á Azure og skýjaumhverfum
- Þekkingu á Linux stýrikerfum og tengdum hugbúnaði
- Þekkingu á sýndarumhverfum, afritunarlausnum og vöktun
- Microsoft- eða aðrar fagvottani
Fríðindi
- Framúrskarandi vinnuaðstaða í nýjum, glæsilegum höfuðstöðvum að Dalvegi 30A eða, eftir atvikum, í samvinnurýmum á landsbyggðinni.
- Sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi.
- Spennandi verkefni og tækifæri til vaxtar.
- Stöðug þróun þekkingar.
- Veglegur velferðarpakki.
- Stuðningur í kringum barneignir
- Aðgengi að líkamsrækt og hvíldarherbergi á vinnustaðnum.
- Hollur og góður matur í niðurgreiddri mataráskrift og hressing yfir daginn.
- Samgöngustyrkur.
- Niðurgreitt internet, farsími og símtækjastyrkur.
- Kostur á að sækja um í Menntasjóðinn Fremri.
- Öflugt starfsmannafélag, klúbbastarf og frábærir samstarfsfélagar.
Um Origo
Origo er þjónustu- og þekkingarfyrirtæki sem vinnur með fyrirtækjum að því að ná forskoti í breyttum heimi þar sem tæknin skiptir öllu máli. Hjá Origo starfa um 200 sérfræðingar með yfirburðaþekkingu á stafrænum lausnum sem vinna að því alla daga að hjálpa viðskiptavinum að ná sínum markmiðum.
Hjá Origo leggjum við áherslu á að bjóða starfsfólki upp á framúrskarandi vinnuumhverfi, áhugaverð verkefni og tækifæri til að halda áfram að þróa þekkingu sína. Þannig styðjum við starfsfólk okkar til vaxtar og tryggjum um leið bestu, mögulegu þjónustuna til okkar viðskiptavina.
Næstu skref
Ef þú vilt slást í hópinn, endilega sendu okkur umsókn í gegnum ráðningavefinn.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Umsóknarfrestur er til og með 3. desember 2026.
Nánari upplýsingar veita Kristín Gestsdóttir, mannauðsstjóri, kristin.gestsdottir@origo.is og Ottó Freyr Jóhannsson, framkvæmdastjóri þjónustulausna, otto.freyr.johannsson@origo.is