Netsérfræðingur
Origo
- Category
- DevOps and cloud
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Location
- Iceland
Viltu vinna með því nýjasta í netlausnum?
Origo leitar að netsérfræðingi til að hanna, byggja og reka netinnviði fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Þú færð að vinna með HPE Juniper netbúnaði í Apstra- og Mist-uppsetningum, ásamt Fortinet netöryggis- og netbúnaði.
Hjá okkur starfar hópur sérfræðinga sem hannar og rekur netkerfi með afköst og rekstraröryggi að leiðarljósi. Ef þú vilt ekki bara halda netinu gangandi heldur skilja það, bæta það og tryggja að það virki gæti þetta verið rétta tækifærið fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Setja upp og reka netumhverfi á HPE Juniper búnaði með Apstra og Mist
- Vinna með Fortinet eldveggi, VPN gáttir og aðrar netöryggislausnir
- Setja upp og stilla beina, svissa og þráðlaus net hjá viðskiptavinum
- Sjá um daglegan rekstur, vöktun og viðhald netkerfa, með áherslu á afköst, aðgengi og öryggi
- Greina og leysa flókin netvandamál
- Taka þátt í hönnun, breytingum og umbótum á netumhverfum og í innleiðingar- og þróunarverkefnum
- Halda rekstrarskjölun í lagi og ráðleggja viðskiptavinum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Við gerum ekki ráð fyrir að einn einstaklingur kunni allt, en viljum gjarnan sjá:
- Reynslu af rekstri og uppsetningu netkerfa
- Mjög góðan skilning á TCP/IP og almennri netfræði
- Reynslu af routing, switching, VLAN, VPN og þráðlausum netum
- Þekkingu og reynslu af eldveggjum og netöryggislausnum
- Reynslu af bilanagreiningu í flóknum netumhverfum
- Góða íslensku- og enskukunnáttu
- Þjónustulund, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Stór plús ef þú hefur þekkingu á:
- Juniper, Apstra eða Mist
- Fortinet (FortiGate, o.fl.)
- Vöktunar- og rekstrarlausnum
- Skýjanetum, t.d. Azure networking
- Vottanir frá t.d. Juniper, Fortinet eða Cisco eru kostur
Fríðindi
- Framúrskarandi vinnuaðstaða í nýjum, glæsilegum höfuðstöðvum að Dalvegi 30A eða, eftir atvikum, í samvinnurýmum á landsbyggðinni
- Sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Spennandi verkefni og tækifæri til vaxtar
- Stöðug þróun þekkingar
- Veglegur velferðarpakki
- Stuðningur í kringum barneignir
- Aðgengi að líkamsrækt og hvíldarherbergi á vinnustaðnum
- Hollur og góður matur í niðurgreiddri mataráskrift og hressing yfir daginn
- Samgöngustyrkur
- Niðurgreitt internet, farsími og símtækjastyrkur
- Kostur á að sækja um í Menntasjóðinn Fremri
- Öflugt starfsmannafélag, klúbbastarf og frábærir samstarfsfélagar
Um Origo
Origo er þjónustu- og þekkingarfyrirtæki sem vinnur með fyrirtækjum að því að ná forskoti í breyttum heimi þar sem tæknin skiptir öllu máli. Hjá Origo starfa um 200 sérfræðingar með yfirburðaþekkingu á stafrænum lausnum sem hjálpa viðskiptavinum að ná markmiðum sínum alla daga.
Við leggjum áherslu á framúrskarandi vinnuumhverfi, áhugaverð verkefni og tækifæri til að þróa þekkingu þína áfram. Þannig styðjum við starfsfólk til vaxtar og tryggjum viðskiptavinum bestu mögulegu þjónustu.
Næstu skref
Viltu slást í hópinn? Sendu okkur umsókn í gegnum ráðningavefinn. Allar umsóknir og fyrirspurnir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Umsóknarfrestur er til og með 3. desember 2026.
Nánari upplýsingar veita Kristín Gestsdóttir, mannauðsstjóri, kristin.gestsdottir@origo.is, og Ottó Freyr Jóhannsson, framkvæmdastjóri þjónustulausna, otto.freyr.johannsson@origo.is.