QA Lead
Origo
- Category
- QA and testing
- Seniority
- Senior
- Posted
- Deadline
- Location
- Iceland
Það er mikið um að vera hjá Origo og nú leitum við að sjálfstæðum og útsjónarsömum sérfræðingi í gæðastjórnun og prófunum til að ganga til liðs við Digital Labs Origo. Í Digital Labs vinnum við að fjölbreyttum og spennandi verkefnum og breytum hugmyndum í stafrænar lausnir sem einfalda daglegt líf fólks og fyrirtækja. Sem QA Lead tryggir þú að okkar lausnir virki fyrir notendur og færð tækifæri til að leiða verkefni frá hugmynd til afhendingar. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni og náið samstarf við viðskiptavini og teymið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja og framkvæma gæðaprófanir á stafrænum lausnum
- Gera prófunaráætlanir og tryggja skýra skráningu og eftirfylgni galla
- Þróa, innleiða og viðhalda sjálfvirkum prófunum og nýta gervigreind til að bæta gæðastjórnun
- Leiða afmörkuð verkefni, forgangsraða og halda utan um framvindu
- Vinna náið með forriturum, hönnuðum og öðrum hagaðilum
- Sinna verkefnum hjá viðskiptavinum og vera tengiliður milli þeirra og teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Að minnsta kosti 4 ára reynsla af gæðastjórnun og/eða hugbúnaðarprófunum
- Reynsla af sjálfvirkum prófunum og þekking á prófunartólum
- Góður skilningur á hugbúnaðarþróun og prófunarferlum
- Reynsla af því að leiða verkefni
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni og lausnamiðuð hugsun
Fríðindi
- Framúrskrandi vinnuaðstaða í nýjum, glæsilegum höfuðstöðvum að Dalvegi 30A eða, eftir atvikum, í samvinnurýmum á landsbyggðinni.
- Sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi.
- Spennandi verkefni og tækifæri til vaxtar.
- Stöðug þróun þekkingar.
- Veglegur velferðarpakki.
- Stuðningur í kringum barneignir
- Aðgengi að líkamsrækt og hvíldarherbergi á vinnustaðnum.
- Hollur og góður matur í niðurgreiddri mataráskrift og hressing yfir daginn.
- Samgöngustyrkur.
- Niðurgreitt internet, farsími og símtækjastyrkur.
- Kostur á að sækja um í Menntasjóðinn Fremri.
- Öflugt starfsmannafélag, klúbbastarf og frábærir samstarfsfélagar.
Um Origo
Origo er þjónustu- og þekkingarfyrirtæki sem vinnur með fyrirtækjum að því að ná forskoti í breyttum heimi þar sem tæknin skiptir öllu máli. Hjá Origo starfa um 200 sérfræðingar með yfirburðaþekkingu á stafrænum lausnum sem vinna að því alla daga að hjálpa viðskiptavinum að ná sínum markmiðum.
Hjá Origo leggjum við áherslu á að bjóða starfsfólki upp á framúrskarandi vinnuumhverfi, áhugaverð verkefni og tækifæri til að halda áfram að þróa þekkingu sína. Þannig styðjum við starfsfólk okkar til vaxtar og tryggjum um leið bestu, mögulegu þjónustuna til okkar viðskiptavina.
Næstu skref
Ef þú vilt slást í hópinn, endilega sendu okkur umsókn í gegnum ráðningavefinn.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember 2026.
Nánari upplýsingar veita Kristín Gestsdóttir, mannauðsstjóri, kristin.gestsdottir@origo.is og Alexandra Cruz Buenano, forstöðumaður Digital labs, alexandra.cruz.buenano@origo.is