Öflugur liðsfélagi í UT teymi Orkunnar
Orkan
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Work mode
- On-site
- Location
- Reykjavík
Hefur þú áhuga á upplýsingatækni, þjónustu og lausn tæknilegra viðfangsefna? Auk þess að vera orkumikill, snjall og næs einstaklingur. Þá gæti starfið hjá okkur hentað þér.
Við leitum að orkubolta til liðs við UT teymið okkar. Starfið er fjölbreytt og felur í sér náið samstarf við rekstur fyrirtækisins, þar sem UT-teymið sinnir breiðu tæknilegu umhverfi Orkunnar.
Starfinu fylgir föst viðveru á skrifstofu Orkunnar alla virka daga, auk þess að sinna verkefnum á sölustöðvum í kringum höfuðborgarsvæðið.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur M., forstöðumaður UT teymis Orkunnar, gudmundurm@orkan.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennur rekstur, umsjón og þróun upplýsingakerfa Orkunnar
- Bilanagreining, notendaþjónusta og tæknileg aðstoð
- Umsjón með aðgangsmálum, notendum og búnaði
- Þátttaka í gagnavinnslu og samþættingum milli kerfa
- Samskipti og samstarf birgja og þjónustuaðila
- Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum og tæknilegum umbótum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
- Reynsla af SQL Server og SQL-fyrirspurnargerð
- Frumkvæði, jákvætt viðhorf og geta til að takast á við fjölbreytt verkefni
- Þekking á gagnavinnslu og gagnaflæði milli kerfa
- Reynsla af samþættingum og/eða API-tengingum
Kostir ef viðkomandi er með reynslu og þekkingu á Microsoft 365, Microsoft Azure, SQL-gagnagrunnum, API-tengingum, netkerfum, upplýsingatækniöryggi, myndavélakerfum, greiðslu og afgreiðslukerfum, eldsneytiskerfum eða hleðslustöðvarkerfum en ekki skilyrði.
Orkan er framsækið þjónustu- og orkufyrirtæki sem leggur áherslur á tækninýjungar, skilvirkni og framúrskarandi þjónustu.