Hafðu stjórn á straumnum - sérfræðingur stjórnkerfa
Rarik ohf.
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Location
- Egilsstaðir; Akureyri; Reykjavík
Ertu tæknilega þenkjandi og lausnamiðuð manneskja sem hefur gaman af því að tengja saman kerfi, gögn og snjallar lausnir?
Við leitum að öflugum sérfræðingi stjórnkerfa til að taka þátt í uppbyggingu, rekstri og þróun stjórn- og fjargæslukerfa. Hjá Rarik færðu tækifæri til að vinna með tæknina sem gerir okkur kleift að fylgjast með og stýra dreifikerfum rafmagns og hitaveitu á landsbygðinni. Starfið er fjölbreytt, tæknilega spennandi og skiptir miklu máli fyrir örugga og áreiðanlega orkuafhendingu til heimila og fyrirtækja.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sem sérfræðingur stjórnkerfa verður þú í kerfiseigandi SCADA-kerfis Rarik og berð faglega ábyrgð á þróun þess og líftíma í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga, notendur og þjónustuaðila. Þú tekur þátt í rekstri, viðhaldi og áframhaldandi þróun SCADA- og annarra stjórn- og fjargæslukerfa, þar sem snjallar lausnir, gagnasöfnun og sjálfvirkni gegna sífellt stærra hlutverki.
Sérfræðingur stjórnkerfa vinnur meðal annars við uppsetningu, breytingar, prófanir og bilanagreiningar í kerfum okkar og þróun og samþættingu kerfa, búnaðar og fjarskiptalausna. Hann tekur einnig þátt í innleiðingu nýrra tæknilausna, sjálfvirkni og snjalllausna í samstarfi við sérfræðinga á sviði raforkukerfa, OT, fjarskipta og upplýsingatækni.
Verkefnin eru fjölbreytt og kalla á bæði tæknilega yfirsýn og hæfileikann til að sjá hvernig ólík kerfi tengjast og vinna saman. Með öflugum stjórnkerfum og snjallari nýtingu gagna stuðlum við að auknu afhendingaröryggi, skilvirkari rekstri og öflugum innviðum fyrir orkuskipti framtíðarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Rétta manneskjan er með háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. rafiðnfræði, tæknifræði eða verkfræði, og býr yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu. Reynsla af uppbyggingu eða viðhaldi stjórn- og fjargæslukerfa á borð við SCADA, DMS eða ADMS er mikill kostur, rétt eins og þekking á rafdreifikerfum. Bílpróf er jafnframt skilyrði.
Við leitum að manneskju sem hefur gott tæknilegt innsæi, er nákvæm, skipulögð og hefur gaman af því að leysa flóknar áskoranir. Þú þarft að geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og tekið ábyrgð, en jafnframt eiga auðvelt með að tengjast fólki og vinna með ólíkum sérfræðingum.
Umfram allt leitum við að manneskju sem er forvitinn um tæknina, fljót að tileinka sér nýjungar og hefur metnað til að þróast með okkur.
Af hverju að tengjast okkur?
Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með háþróaða tækni sem hefur raunveruleg áhrif á daglegt líf fólks um allt land. Við erum í spennandi þróun þar sem stafræn tækni, snjallvæðing og nýjar lausnir gegna lykilhlutverki í að byggja upp öruggt og öflugt dreifikerfi framtíðarinnar.
Rarik er framsækið þekkingar- og þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á nýsköpun, öryggi, jafnrétti og fjölbreytileika. Við tökum vel á móti alls konar fólki og viljum að starfsfólkið okkar fái tækifæri til að vaxa og dafna í starfi.
Starfið er án staðsetningar sem þýðir að hægt er að sinna því á starfsstöðvum okkar víðsvegar um landið.
Tengdu þig við okkur og taktu þátt í að móta snjallari og öruggari orkuframtíð!
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðgeir Guðmundsson, deildarstjóri kerfisstjórnar, gudggud@rarik.is, í síma 528 9000.