Tæknimanneskja óskast

Rótgróið upplýsingatæknifyrirtæki

Category
IT operations
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Work mode
On-site
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Rótgróið upplýsingatæknifyrirtæki í Reykjavík leitar að jákvæðri og lausnamiðaðri tæknimanneskju í fullt starf. Hjá okkur færðu fjölbreytt verkefni hjá fjölda fyrirtækja og stofnana, lærir stöðugt eitthvað nýtt og nýtir gervigreind í daglegum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Notendaþjónusta og tæknileg aðstoð, bæði í fjarþjónustu og á staðnum
  • Umsjón og rekstur Microsoft 365 og Google Workspace
  • Uppsetning og frágangur útstöðva, jaðartækja og nettenginga
  • Bilanaleit í vélbúnaði, hugbúnaði og netkerfum
  • Afritun, vöktun og netöryggi
  • Rekstur hýsingar í skýinu
  • Skráning verka og skjölun kerfa
  • Innleiðing gervigreindarlausna með viðskiptavinum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð þekking á Microsoft 365 og Windows
  • Reynsla af notendaþjónustu eða rekstri tölvukerfa
  • Skilningur á netkerfum, s.s. IP-tölum, beinum og eldveggjum
  • Jákvætt viðhorf til gervigreindar; færni í notkun gervigreindarverkfæra er sterkur kostur
  • Þekking á Google Workspace, skýjahýsingu, IP-símkerfum og netöryggislausnum er kostur
  • Vottanir á sviði upplýsingatækni eru kostur
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og nákvæmni í skráningu
  • Lipurð í samskiptum og einlægur vilji til að leysa mál
  • Góð íslenskukunnátta og bílpróf

Fríðindi í starfi

  • Fullt starf kl. 9-17 með möguleika á aukavinnu
  • Fjölbreytt verkefni þar sem enginn dagur er eins
  • Stuðningur við nám og vottanir
  • Tækifæri til að móta starfið og vaxa með fyrirtækinu
  • Gott vinnuumhverfi í Reykjavík

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2026. Sótt er um í gegnum Alfreð og farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Apply