Ert þú næsta tækniborðshetja Sensa?
Sensa ehf.
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Work mode
- Hybrid
- Location
- Reykjavík
Við leitum að lausnamiðuðum einstaklingi með góða þjónustulund og vilja til að læra og þróast í starfi.
Sensa leitar að sérfræðingi á tækniborð sem nýtur þess að hjálpa öðrum og vinna í hröðu og fjölbreyttu umhverfi. Á tækniborði starfar öflugur hópur fólks sem sinnir fjölbreyttum erindum viðskiptavina í gegnum síma og verkbeiðnakerfi. Mikilvægt er að geta unnið bæði sjálfstætt og í teymi – ásamt því að vera með einstaka þjónustulund.
Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni þar sem enginn dagur er eins, sem gerir vinnuna lifandi og áhugaverða. Þú munt eiga í beinum samskiptum við viðskiptavini og sjá áþreifanlegan árangur af vinnunni. Að auki felur starfið í sér þróunarmöguleika og tækifæri til að sérhæfa þig frekar innan upplýsingatækninnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við viðskiptavini í gegnum síma og fjartengingar
- Lausnamiðuð bilanagreining og úrbætur
- Umsýsla og aðstoð með Microsoft 365 umhverfi
- Þátttaka í rekstri og viðhaldi á kerfum viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla eða þekking á rekstri útstöðva
- Hæfileiki til að vinna skipulega að mörgum verkefnum á sama tíma
- Hæfileiki til að læra og aðlagast nýrri tækni
- Hæfileiki til að miðla þekkingu á skipulagðan máta
- Microsoft gráður kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Bílpróf
Mátaðu þig við starfið:
Þetta starf hentar þér ef þú:
- Nýtur þess að leysa vandamál
- Hefur gaman af samskiptum við fólk
- Vilt þróast í upplýsingatækni
- Getur unnið sjálfstætt en líka í teymi
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn
- Heilsueflingarstyrkur
- Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða
- Fyrsta flokks mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími og möguleikar á fjarvinnu
Sensa er alþjóðlegt 120 manna þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í upplýsingatækni á fyrirtækjamarkaði.
Hjá okkur starfar öflugt teymi sérfræðinga sem styðja hvert annað og deila þekkingu. Við leggjum mikla áherslu á góðan starfsanda, sveigjanleika og að starfsfólk hafi svigrúm til að þróast í starfi.
Við bjóðum upp á nútímalegt og sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til aukinnar menntunar á sviði upplýsingatækni og svigrúm til að vaxa á eigin forsendum. Mikil áhersla er lögð á velferð starfsmanna, góðan starfsanda og hvetjandi og skemmtilegt starfsumhverfi.
Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember nk. en byrjað verður að vinna úr umsóknum um leið og þær berast.
Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð og við hvetjum öll til að sækja um, óháð kyni.
Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum umsóknarkerfi Alfreðs.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jörundur Kristinsson, í gegnum netfangið jorundur.kristinsson@sensa.is