Sérfræðingur í Microsoft 365 skýjalausnum
Sensa ehf.
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Location
- Reykjavík
Sensa leitar að öflugum sérfræðingi í Microsoft 365 skýjalausnum til að vinna að innleiðingu, rekstri og þróun lausna fyrir viðskiptavini okkar.
Hlutverkið felur í sér að ráðleggja viðskiptavinum og/eða starfsfólki um lausnir sem styðja við öruggt, skilvirkt og nútímalegt vinnuumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Innleiðing, uppsetning og rekstur Microsoft 365 lausna
- Umsjón með Microsoft umhverfum, notendaheimildum og aðgangsstýringum
- Umsjón með tækjum og aðgangsstýringum í Microsoft Intune
- Innleiðing og þróun öryggislausna
- Ráðgjöf um val og nýtingu lausna út frá þörfum viðskiptavina
- Greining og úrlausn flókinna rekstrar- og þjónustubeiðna
- Sjálfvirknivæðing verkefna, m.a. með PowerShell og Power Automate
- Vöktun umhverfa, skjölun lausna og miðlun þekkingar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði upplýsingatækni eða sambærileg reynsla
- Þekking og reynsla af Microsoft 365 og Microsoft Entra ID
- Þekking á upplýsingaöryggi, aðgangsstýringum og auðkenningarlausnum
- Hæfni til að útskýra tæknileg viðfangsefni á skýran og aðgengilegan hátt
- Þekking á PowerShell er kostur
- Microsoft-vottanir eru kostur, geta einnig verið hluti af þróun í starfi
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Nákvæmni og rík öryggisvitund
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn
- Heilsueflingarstyrkur
- Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða
- Fyrsta flokks mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími
Um Sensa
Sensa er alþjóðlegt 120 manna þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í upplýsingatækni á fyrirtækjamarkaði.
Hjá okkur starfar öflugt teymi sérfræðinga sem styðja hvert annað og deila þekkingu. Við leggjum mikla áherslu á góðan starfsanda, sveigjanleika og að starfsfólk hafi svigrúm til að þróast í starfi.
Við bjóðum upp á nútímalegt og sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til aukinnar menntunar á sviði upplýsingatækni og svigrúm til að vaxa á eigin forsendum. Mikil áhersla er lögð á velferð starfsmanna, góðan starfsanda og hvetjandi og skemmtilegt starfsumhverfi.
Hjá Sensa leggjum við mikla áherslu á fjölbreytt vinnuumhverfi þar sem öll fá tækifæri til að njóta sín, óháð kyni, uppruna og bakgrunni.
Umsóknarfrestur er til og með 30. október en byrjað verður að vinna úr umsóknum um leið og þær berast.
Hjá Sensa leggjum við mikla áherslu á fjölbreytt vinnuumhverfi þar sem öll fá tækifæri til að njóta sín, óháð kyni, uppruna og bakgrunni.
Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð
Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum umsóknarkerfi Alfreðs.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jörundur Kristinsson, í gegnum netfangið jorundur.kristinsson@sensa.is