Sérfræðingur í hugbúnaðarþróun með áherslu á gervigreind
Seðlabanki Íslands
- Category
- Backend
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Deadline
- Location
- Höfuðborgarsvæði
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan forritara í teymi hugbúnaðarþróunar. Við leitum að öflugum einstaklingi með reynslu af fram- og bakendaþróun og áhuga á að þróa nýjar leiðir við hugbúnaðargerð með sjálfvirkni og gervigreind.
Hugbúnaðarþróun er teymi innan deildarinnar þróun og gagnahögun á sviði upplýsingatækni. Teymið vinnur að þróun, viðhaldi og rekstri hugbúnaðarlausna og gagnaumhverfis bankans. Starfið spannar allt þróunarferlið frá þarfagreiningu og hönnun til útfærslu og rekstrar. Áhersla er lögð á að leggja fram og meta ólíkar leiðir til úrlausnar í samstarfi við hagaðila.
Við leitum að einstaklingi sem sýnir frumkvæði og er viljugur til að kanna hvernig nýta megi gervigreindarerindreka með öruggum hætti við hugbúnaðargerð. Viðkomandi tekur einnig þátt í að móta og þróa hvernig megi hagnýta gervigreind og sjálfvirkni í daglegum rekstri.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þarfagreining og hönnun hugbúnaðarlausna ásamt þróun fram- og bakenda.
Sinna viðhaldi, uppfærslum og áframhaldandi umbótum á lausnum í rekstri.
Samþætting hugbúnaðarlausna við önnur kerfi og gagnaþjónustur.
Hagnýting sjálfvirkni og gervigreindar í lausnum og þróunarferlum, meðal annars með gervigreindarerindrekum.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegra greina.
Sterk forritunarfærni og haldgóð reynsla af hugbúnaðarþróun í .NET og vinnu með SQL, þar á meðal fram- og bakendaþróun.
Reynsla af þarfagreiningu og hönnun hugbúnaðarlausna og hæfni til að greina verkefni og meta ólíkar lausnaleiðir.
Frumkvæði, sjálfstæði og drifkraftur til að koma hugmyndum í framkvæmd og fylgja verkefnum eftir.
Áhugi á og reynsla af hagnýtingu gervigreindar og sjálfvirkni í hugbúnaðarþróun.
Þekking á stórum mállíkönum og hvernig nýta má þau í hugbúnaðarlausnum.
Reynsla af þróun gervigreindarerindreka og tengingu mállíkana við gögn og kerfi í gegnum forritaskil (API) er kostur.
Góð samskiptafærni og hæfni til að útskýra tæknileg viðfangsefni á íslensku og ensku.