Hugbúnaðarsérfræðingur

Skatturinn

Category
Backend
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Location
Iceland
Apply Opens the original posting

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingum í störf hugbúnaðarsérfræðinga, með áherslu á tollakerfi, í deild hugbúnaðarlausna á upplýsingatæknisviði Skattsins. Starfsstöð viðkomandi verður í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík.

Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði, virkri samkeppni og vernd samfélagsins. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Deild hugbúnaðarlausna ber ábyrgð á hönnun, þróun, prófunum, rekstri og viðhaldi hugbúnaðarlausna Skattsins og veitir leiðsögn og tæknilega ráðgjöf til teyma og hagsmunaaðila. Deildin vinnur að fjölbreyttum og mikilvægum lausnum sem styðja við stafræna þjónustu, innri ferli og lögbundin verkefni Skattsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hönnun, þróun og viðhald hugbúnaðarlausna í kerfum Skattsins

  • Ábyrgð á tæknilegri útfærslu þróunar og nýrra eiginleika í samstarfi við vörueiganda og kjarnateymi

  • Ábyrgð á rekstri, vöktun og úrlausn tæknilegra vandamála í kerfum

  • Tæknileg ráðgjöf, samskipti og samstarf við innri og ytri hagaðila um tæknilegar útfærslur og er tæknilegur tengiliður fyrir tollateymi

  • Þátttaka í tæknilegri þróun og umbótum á núverandi kerfum og vinnubrögðum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun (grunnnám) í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegu

  • A.m.k. þriggja ára reynsla af full stack forritun (t.d. .NET, React og/eða sambærilegt)

  • Reynsla af útgáfustýringu (Git) og CI/CD ferlum

  • Reynsla af Scrum/Agile

  • Þekking á gagnagrunnum (t.d. Oracle og/eða SQL server) er kostur

  • Reynsla af samþættingu milli kerfa er kostur

  • Góð samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og frumkvæði

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í þverfaglegum teymum

  • Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að 6 mánuði að loknum umsóknarfresti.

Apply