Hugbúnaðarsérfræðingur

Skræða ehf

Category
IT operations
Seniority
Mid-level
Posted
Work mode
Hybrid
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Skræða ehf. þróar og selur hugbúnað, Signal EMOS, sem veitendur heilbrigðisþjónustu reiða sig á í daglegu starfi. Við leitum að lausnasérfræðingi sem setur sig inn í starfsemi viðskiptavina, greinir hvernig kerfið okkar mætir þörfum þeirra og leiðir innleiðingar frá greiningu  og þar til verklag og hugbúnaður hafa sameinast.

Starfið krefst heildstæðrar og skipulagðrar nálgunar á vandamálum með víðtækar og fyrirbyggjandi aðgerðir í huga. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining á klínísku og rekstrarlegu verklagi viðskiptavina og skjölun á þörfum þeirra 

  • Uppbygging innviða fyrir starfið með aðgengi annarra starfsmanna og viðskiptavina að nauðsynlegum upplýsingum 

  • Gerð innleiðingaáætlana og verkstjórn fram að gangsetningu 

  • Stillingar og uppsetning lausna innan kerfisins og framsetning valkosta með kostum og göllum 

  • Breytingastjórnun við innleiðingar: kynning, þjálfun og stuðningur við starfsfólk við nýtt verklag 

  • Fastur tengiliður tiltekins hóps viðskiptavina 

  • Greining vandamála, rakning að mögulegri sameiginlegri/víðtækari orsök til heildræna úrlausna 

  • Náið samstarf við hugbúnaðarteymi um úrbætur og tillögur um nýsmíði lausna á grundvelli þarfagreininga hjá viðskiptavinum 

  • Dagleg umsýsla: notendur og aðgangsstýringar, Microsoft 365, VPN og dreifing hugbúnaðar 

Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur 

  • Reynsla af innleiðingum, lausnaráðgjöf, kerfisgreiningu eða sérfræðistörfum tengdum hugbúnaðarkerfum 

  • Reynsla af gerð kröfulýsinga, ferlarita eða innleiðingaáætlana er kostur 

  • Reynsla af breytingastjórnun og þjálfun notenda 

  • Færni í að greina þarfir notenda með takmarkaðan tæknibakgrunn og setja þær fram í skýrum, skriflegum lýsingum 

  • Kerfisbundin vinnubrögð við sannprófanir –  sýna fram á að lausnir virki umfram það sem prófað var handvirkt. 

  • Góð þekking á upplýsingatækni á borð við Windows, Linux, SQL, Active Directory / Entra ID og Microsoft 365 

  • Skilningur á grunnatriðum netkerfa (VPN, DNS, eldveggir) 

  • Reynsla úr heilbrigðisgeiranum er kostur 

  • Skipulögð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð – þú tekur ábyrgð á og klárar það sem þú tekur að þér. 

  • Gott vald á íslensku er skilyrði, auk góðrar enskukunnáttu 

Fríðindi í starfi

  • Tækifæri til að vaxa í starfi og taka á sig aukna ábyrgð 

  • Sveigjanlegur vinnutími og möguleiki á fjarvinnu 

Apply