Notendaþjónusta og kerfisrekstur

Tölvuaðstoð ehf.

Category
IT operations
Seniority
Mid-level
Posted
Work mode
On-site
Location
Reykjavík
Apply Opens the original posting

Tölvuaðstoð hefur staðið vaktina fyrir íslensk fyrirtæki í yfir 20 ár. Í Vaktinni sjáum við um tölvupóst, lén, afritun, öryggi og daglegan rekstur tölvukerfa fyrir viðskiptavini okkar í föstum þjónustuleiðum. Nú stækkum við hópinn og leitum að lausnamiðuðum sérfræðingi í fullt starf á skrifstofu okkar á Stórhöfða.

Þú sinnir viðskiptavinum í Vaktinni frá degi til dags: stofnar notendur og pósthólf, heldur utan um aðgangsstýringu og leyfi, vaktar afritun og öryggi og leysir úr erindum í síma, með fjartengingu og á staðnum. Þú tekur líka þátt í að innleiða nýja viðskiptavini og ganga frá þegar þjónustu lýkur.

Við notum gervigreind við greiningu, skjölun og sjálfvirkni.

Starfið hentar þeim sem hafa gaman af að leysa mál fyrir fólk og halda kerfum í lagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsýsla Microsoft 365 og Google Workspace: notendur, pósthólf, hópar, leyfi og aðgangsstýring
  • Öryggi og eftirlit í skýinu: fjölþætt auðkenning, lykilorðaumsýsla og regluleg öryggisyfirferð
  • Rekstur og vöktun útstöðva: uppfærslur, vírusvarnir og vernd gegn gagnagíslatöku
  • Afritun, vöktun á afritun og endurheimt gagna
  • Umsýsla léna og tölvupósts (DNS, SPF, DKIM, DMARC)
  • Notendaþjónusta og bilanaleit í síma, með fjartengingu og á staðnum
  • Innleiðing nýrra viðskiptavina og uppsetning tölva, net- og jaðarbúnaðar
  • Skráning verka og skjölun á kerfum viðskiptavina

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af notendaþjónustu eða kerfisrekstri
  • Traust þekking á Windows og Microsoft 365
  • Góður skilningur á netkerfum, svo sem IP-tölum, beinum og eldveggjum
  • Reynsla af Entra ID, Intune eða Conditional Access er sterkur kostur
  • Þekking á Google Workspace
  • Þekking á afritunarlausnum og IP-símkerfum er kostur
  • Færni í notkun gervigreindartóla er kostur
  • Vottanir á sviði upplýsingatækni eru kostur
  • Sjálfstæði, skipulagshæfileikar og nákvæmni í skráningu
  • Þjónustulund og ánægja af því að leysa mál
  • Gott vald á íslensku, töluðu og rituðu
  • Bílpróf

Fríðindi í starfi

  • Fullt starf í dagvinnu kl. 9-17
  • Fjölbreytt umhverfi hjá ólíkum viðskiptavinum
  • Stuðningur við nám og alþjóðlegar vottanir
  • Lítill og samhentur hópur með stuttar boðleiðir
  • Tækifæri til að móta starfið og vaxa með fyrirtækinu
  • Góð vinnuaðstaða og næg bílastæði

Sótt er um í gegnum Alfreð og farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Apply