Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir starfsmanni í TextílLab

Textílmiðstöð Íslands

Category
Other
Seniority
Mid-level
Posted
Deadline
Work mode
On-site
Location
Blönduós
Apply Opens the original posting

Um er að ræða spennandi starf í stafrænni textílsmiðju sem snýst um nýsköpun, tækni og hringrásarhagkerfi í textílvinnslu.Textílmiðstöð Íslands er þekkingarsetur og sköpunaver staðsett á Blönduósi.

Mikil áhersla er lögð á uppbyggingu rannsóknainnviða í textíl með áherslu á stafræna tækni, umhverfisvæna hönnun og endurvinnslu textílúrgangs. Einnig nýtingu innlends hráefnis, varðveislu og eflingu hefðbundinnar handverkskunnáttu.



Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð í samstarfi við umsjónarmann TextílLabsins:

  • Umsjón með rýminu: Daglegur rekstur, viðhald, þrif og umsjón með  stafrænum tækjabúnaði með áherslu á leiserskera og þrívíddarprentun.  Í  umsjón starfsfólks eru jafnframt tæki tengd vefnaði, prjóni, útsaum og þæfingu. 

  • Leiðbeining og kennsla: Taka á móti einstaklingum, hópum og nemendum, veita tæknilega aðstoð og halda reglulega námskeið á tækin.

  • Stuðningur við nýsköpun: Aðstoða frumkvöðla, listafólk og sprotafyrirtæki við útfærslu verkefna og þróun á vörum.

  • Samstarf: Þátttaka í innlendum og alþjóðlegum samstarfsverkefnum tengdum Textílmiðstöðinni.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi með:

  • Brennandi áhuga á textíl, nýsköpun, tækni og umhverfismálum.

  • Tæknimenntun eða önnur  menntun sem nýtist í stafrænni smiðju.

  • Ríka samskiptahæfni og getu til að leiðbeina fjölbreyttum hópum. 

Apply