Onboard
Back to all jobs

Hugbúnaðarsérfræðingur

VÍS · Ármúli 3, 108 Reykjavík

Backend Mid-level
Posted
Application deadline
Apply on company site

VÍS er á spennandi tímamótum í stafrænni þróun. Við höfum verið að innleiða nútímalegan tæknistakk og leitum nú að hugbúnaðarsérfræðingi sem vill taka þátt og hafa áhrif og móta framtíð stafrænna lausna með okkur. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hönnun og þróun nýrra veflausna, bæði í framenda (Next.js, Typescript) og bakenda (NestJS) 
  • Viðhald og endurbætur á núverandi lausnum
  • Mæla og bæta afköst, þróa og viðhalda gæðum kóða og sjálfvirkum prófunum 
  • Samvinna þvert á deildir í fjölbreyttum og þverfaglegum verkefnum
  • Virk þátttaka í að efla teymið, afla nýrrar þekkingar og miðla henni áfram 
  • Þátttaka í tæknilegu vali og mótun þróunarferla innan teymisins  

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi 
  • Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla í hugbúnaðarþróun 
    • Góð þekking og reynsla í Typescript og Next.js, auk reynslu af bakendaþróun með NestJS 
    • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu og starfi í Agile/Scrum umhverfi 
    • Reynsla af GitHub eða sambærilegri útgáfustýringarkerfum 
    • Frumkvæði, metnaður og fagleg vinnubrögð 
    • Góð samskiptahæfni og vilji til að taka virkan þátt í umhverfi þar sem allir leggja sitt af mörkum 

    Fríðindi í starfi

    • Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
    • Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
    • Árlegur líkamsræktarstyrkur
    • Frábært mötuneyti
    • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
    • Heilsufarsskoðun, bólusetning og heilsueflandi fræðsla
    • Virkt starfsmannafélag sem býður m.a. upp á golfklúbb og aðgang að orlofshúsum
    • Tækifæri til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi

    Nánari upplýsingar veitir Sólrún Húnfjörð Káradóttir, hópstjóri Stafrænna lausna, netfang solrunh@vis.is 

    Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2026. Við hvetjum öll sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um, óháð kyni. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.