Business Central forritari

Wise lausnir ehf.

Category
IT operations
Seniority
Mid-level
Posted
Location
Akureyri; Reykjavík
Apply Opens the original posting

Viltu smíða ERP lausnir sem fyrirtæki og stofnanir nota á hverjum degi?

Wise leitar að lausnamiðuðum og metnaðarfullum forritara til starfa í Reykjavík eða á Akureyri. Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af forritun, vill dýpka þekkingu sína á ERP lausnum með áherslu á gervigreind.

Í hverju felst starfið?

Þú verður hluti af öflugu þróunarteymi sem forritar lausnir og vörur í Business Central. Teymið vinnur náið með ráðgjöfum og viðskiptavinum og kemur að öllu ferlinu, frá greiningu og hönnun til forritunar, prófana, uppfærslna og reksturs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun og viðhald á vörum og lausnum Wise fyrir Business Central.
  • Hönnun og þróun á gervigreindarlausnum fyrir viðskiptaferla.
  • Samvinnu við ráðgjafa við greiningu þarfa viðskiptavina.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af AL-forritun í Microsoft Dynamics 365 Business Central.
  • Þekking á Visual Studio Code, CI/CD og útgáfustýringu, t.d. Git.

Wise er ört vaxandi þekkingarfyrirtæki, sem sérhæfir sig í stafrænum lausnum og býður yfirgripsmikla þjónustu fyrir fyrirtæki með það að markmiði að veita viðskiptavinum forskot í rekstri þeirra.

Í boði er skemmtilegt starf hjá spennandi fyrirtæki með miklum framtíðartækifærum.

Umsóknarfrestur er til og með  26.oktober 2026. Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. 

Nánari upplýsingar veitir Tinni Kári Jóhannesson, mannauðsstjóri (tinni@wise.is)

Apply