Kerfisstjóri í notenda- og útstöðvaþjónustu

Wise lausnir ehf.

Category
IT operations
Seniority
Mid-level
Posted
Location
Akureyri; Reykjavík
Apply Opens the original posting

Við hjá Wise leitum að öflugum og þjónustulunduðum kerfisstjóra í notenda- og útstöðvaþjónustu. 

Starfið snýst um að veita viðskiptavinum Wise daglega upplýsingatækniþjónustu, aðstoða notendur og leysa fjölbreytt tæknileg vandamál. Við bjóðum upp á góða þjálfun og leitum að einstaklingi sem hefur góðan tæknilegan grunn, er lausnamiðaður, hefur áhuga á að læra og þróast í starfi. 

Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur áhuga á upplýsingatækni, kann að meta fjölbreytt verkefni og vill vinna í lifandi umhverfi þar sem samskipti við fólk og úrlausn vandamála eru stór hluti starfsins. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka, úrvinnsla og eftirfylgni þjónustubeiðna frá viðskiptavinum Wise 
  • Tæknileg aðstoð og þjónusta við notendur 
  • Bilanagreining og úrlausn vandamála í hugbúnaði og vélbúnaði 
  • Uppsetning, þjónusta og viðhald á tölvum, útstöðvum og tengdum búnaði 
  • Aðstoð við notendur í Windows og Microsoft 365 
  • Fjaraðstoð og úrlausn tæknilegra vandamála hjá viðskiptavinum 
  • Samstarf við aðra sérfræðinga innan Wise við úrlausn flóknari mála 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun frá NTV eða sambærileg tæknimenntun 
  • Góður almennur skilningur á tölvum, netkerfum og upplýsingatækni 
  • Þekking á Windows og Microsoft 365 
  • Reynsla af notendaþjónustu er kostur 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 

Við leitum að einstaklingi sem 

Er forvitin/n og hefur áhuga á að læra nýja hluti. Við leggjum áherslu á að þú hafir áhuga á að skilja hvernig hlutirnir virka, takir frumkvæði og getir unnið þig að lausn þegar eitthvað kemur upp. 

Þú þarft að vera úrræðagóð/ur, geta tekið ábyrgð á verkefnum og eiga auðvelt með samskipti við ólíkt fólk. Þar sem stór hluti starfsins felur í sér beina þjónustu við viðskiptavini skiptir okkur miklu máli að þú sért jákvæð/ur, fagleg/ur og leggir þig fram við að finna góða lausn. 

Við leggjum mikla áherslu á gott viðhorf, tæknilegan skilning og vilja til að þróa þekkingu sína. Hjá Wise starfar öflugur hópur sérfræðinga sem leggur áherslu á samstarf, þekkingarmiðlun og að hjálpast að við að leysa verkefni. 

Ef þú hefur áhuga á upplýsingatækni, finnst gaman að leysa vandamál og vilt starf þar sem engir tveir dagar eru alveg eins, þá gæti þetta verið starfið fyrir þig. 
 
Umsóknarfrestur er til og með 13.Nóvember 2026. Frekari upplýsingar veitir Franz Viktor Kjartansson, forstöðumaður (franz@wise.is) 

Apply