Ráðgjafi í viðskiptalausnum – tollamál og innkaup
Wise lausnir ehf.
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Location
- Reykjavík; Akureyri
Vilt þú nýta þína þekkingu á tollum og innkaupum til að einfalda rekstur fyrirtækja?
Wise leitar að lausnamiðuðum og drífandi ráðgjafa með sérþekkingu á tollamálum og innkaupum til starfa í Reykjavík eða á Akureyri. Við leitum að einstaklingi sem þekkir ferlið frá pöntun til tollafgreiðslu, hefur áhuga á tækni og nýtur þess að vinna náið með viðskiptavinum.
Í hverju felst starfið?
Þú verður hluti af öflugu teymi sérfræðinga sem ráðleggur viðskiptavinum um innkaup, innflutning og tollamál í Microsoft Dynamics 365 Business Central og tengdum lausnum Wise. Starfið felst meðal annars í greiningu og innleiðingu innkaupa- og tollferla, uppsetningu rafrænnar tollskýrslugerðar og útreikningi kostnaðarverðs, auk þjónustu og áframhaldandi þróunar lausna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini um innkaup, innflutning og tollamál í Microsoft Dynamics 365 Business Central.
- Greining og innleiðing innkaupa- og tollferla, frá pöntun og flutningi til tollafgreiðslu og vörumóttöku.
- Uppsetning og ráðgjöf um rafræna tollskýrslugerð, tollflokkun, aðflutningsgjöld og útreikning kostnaðarverðs.
- Þátttaka í innleiðingum, uppfærslum og þróun tolla- og innkaupalausna Wise.
- Leiðbeiningar til notenda, miðlun þekkingar og fagleg eftirfylgni með verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldbær þekking og reynsla af tollamálum, t.d. tollskýrslugerð, tollflokkun og aðflutningsgjöldum.
- Reynsla af innkaupum, innflutningi eða vörustýringu.
- Háskólamenntun eða önnur reynsla sem nýtist í starfi.
Wise er ört vaxandi þekkingarfyrirtæki, sem sérhæfir sig í stafrænum lausnum og býður yfirgripsmikla þjónustu fyrir fyrirtæki með það að markmiði að veita viðskiptavinum forskot í rekstri þeirra.
Í boði er skemmtilegt starf hjá spennandi fyrirtæki með miklum framtíðartækifærum.
Umsóknarfrestur er til og með 26.oktober 2026. Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Tinni Kári Jóhannesson, mannauðsstjóri (tinni@wise.is)