Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Location
- Akureyri; Reykjavík
Viltu taka þátt í stafrænni vegferð sveitarfélaga og móta lausnir sem skipta máli?
Wise leitar að lausnamiðuðum og drífandi ráðgjafa til starfa í Reykjavík eða á Akureyri. Við leitum að sérfræðingi sem þekkir umhverfi sveitarfélaga, hefur áhuga á stafrænni umbreytingu og þrífst á fjölbreyttum verkefnum.
Í hverju felst starfið?
Þú verður hluti af sérhæfðu teymi sem vinnur með sveitarfélögum að þróun og nýtingu Microsoft Dynamics 365 Business Central. Teymið kemur að ferlagreiningum, uppfærslum, sjálvirkni og lausnum sem styðja við skilvirkari þjónustu og rekstur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og þjónusta með áherslu á sveitarfélög.
- Þarfagreiningar og þátttaka í hönnun lausna fyrir opinbera aðila.
- Ferlagreiningar og tillögur að einföldun og sjálfvirknivæðingu.
- Samskipti við viðskiptavini, virk tengslamyndun og miðlun þekkingar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking á Microsoft Dynamics 365 Business Central.
- Þekking á starfsemi sveitarfélaga eða umhverfi hins opinbera.
- Háskólamenntun eða önnur reynsla sem nýtist í starfi.
Wise er ört vaxandi þekkingarfyrirtæki, sem sérhæfir sig í stafrænum lausnum og býður yfirgripsmikla þjónustu fyrir fyrirtæki með það að markmiði að veita viðskiptavinum forskot í rekstri þeirra.
Í boði er skemmtilegt starf hjá spennandi fyrirtæki með miklum framtíðartækifærum.
Umsóknarfrestur er til og með 26.oktober 2026. Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Tinni Kári Jóhannesson, mannauðsstjóri (tinni@wise.is)