Tæknimaður í afgreiðslulausnum
Wise lausnir ehf.
- Category
- IT operations
- Seniority
- Mid-level
- Posted
- Work mode
- On-site
- Location
- Akureyri; Reykjavík
Við hjá Wise leitum að öflugum og þjónustulunduðum tæknimanni í afgreiðslulausnir.
Starfið snýst um uppsetningu, þjónustu og viðhald á afgreiðslulausnum og tengdum búnaði hjá viðskiptavinum Wise. Við bjóðum upp á góða þjálfun og kennslu í þeim lausnum og búnaði sem starfið snýr að og leitum að einstaklingi sem hefur góðan tæknilegan grunn, er lausnamiðuð, hefur áhuga á að læra og þróast í starfi.
Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur áhuga á tækni, kann að meta fjölbreytt verkefni og vill vinna í lifandi umhverfi þar sem árangurinn af vinnunni er sýnilegur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning, þjónusta og viðhald á afgreiðslukössum og tengdum búnaði
- Bilanagreining og úrlausn tæknilegra vandamála
- Þjónusta og aðstoð við viðskiptavini
- Uppsetningar og tæknivinna á starfsstöðvum viðskiptavina
- Skráning og eftirfylgni þjónustumála
- Samstarf við aðra sérfræðinga innan Wise um úrlausn mála og þróun þjónustunnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun frá NTV eða sambærileg tæknimenntun
- Góður almennur skilningur á tölvum og upplýsingatækni
- Tæknileg færni og geta til að vinna með og setja upp búnað
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð samskiptafærni og þjónustulund
Við leitum að einstaklingi sem
Er forvitin/n og hefur áhuga á að læra nýja hluti. Við leggjum áherslu á að þú hafir áhuga á að skilja hvernig hlutirnir virka, takir frumkvæði og getir unnið þig að lausn þegar eitthvað kemur upp.
Þú þarft að vera úrræðagóð/ur, geta tekið ábyrgð á verkefnum og eiga auðvelt með samskipti við ólíkt fólk. Þar sem stór hluti starfsins felur í sér beina þjónustu við viðskiptavini skiptir okkur miklu máli að þú sért jákvæð/ur, fagleg/ur og leggir þig fram við að finna góða lausn.
Við leggjum mikla áherslu á gott viðhorf, tæknilegan skilning og vilja til að þróa þekkingu sína. Þjálfun í þeim lausnum og búnaði sem við vinnum með er hluti af því að koma þér vel inn í starfið.
Ef þú hefur áhuga á tækni, finnst gaman að leysa vandamál og vilt starf þar sem engir tveir dagar eru alveg eins, þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Umsóknarfrestur er til og með 23.október 2026. Frekari upplýsingar veitir Franz Viktor Kjartansson, forstöðumaður (franz@wise.is)